Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fiskmarkaðarins hefur verið beðið með eftirvæntingu, enda er það ekki á hverjum degi sem ljóstrað er upp leyndarmálum eins vinsælasta veitingastaðar borgarinnar. Kokkinn Hrefnu Rósu Sætran þarf vart að kynna, en hún er einn eigandi Fiskmarkaðarins sem staðsettur er í Aðalstræti 12 í Reykjavík.
Hún hefur vakið athygli fyrir ungan aldur, langa afrekaskrá, og þroskaðan og sérhæfðan smekk. Hrefna keppir fyrir hönd Íslands í kokkalandsliðinu og hefur verið með eigin matreiðsluþætti á Skjá einum.
Lesa meira
Í tilefni af 10 ára afmæli Sölku langar okkur að bjóða afmælistilboð á bókum okkar sem voru gefnar út af hugsjón frekar en hagnaðarvon. Vonandi líst ykkur vel á....
Lesa meira
Íslensk ljóðabók gefin út í Ástralíu!
Um er að ræða bókina Án spora, eftir Stefaníu Guðbjörgu Gísladóttur, sem kom út hjá SÖLKU árið 2007. Stefanía er búsett í Ástralíu.
Fram kemur á vef Norðfirðingafélagsins, að enska þýðingin heiti Without Trace. Stefanía Guðbjörg er ættuð frá bænum Seldal í Norðfirði.
Lesa meira
Anne Holt hefur slegið rækilega í gegn á Íslandi með glæpasögunni Það sem mér ber. Nú hefur forlagið hennar úti í Noregi gert samning við sænska kvikmyndafyrirtækið Yellowbird Productions, hið sama og gerði myndir eftir bókum Stigs Larson. Framleiddar verða sex myndir, ein fer strax í kvikmyndahúsin og fimm munu verða gefnar út á DVD.