forlag með sál
Það sem mér ber

Það sem mér ber

Anne Holt

Ótrúlega spennandi, óhugnanleg og einstaklega grípandi saga.” (Anne Shäffer, Bergens Tidende) „Glæpsamlega vel skrifað.” (Christopher Hals Gylseth, Dagbladet) „Það sem mér ber er án vafa besta glæpasaga Anne Holt.” (Tone Solberg, Dagens Næringsliv)

Kilja

Emilie, níu ára, hverfur á leið heim úr skólanum. Eftir liggur skólataskan hennar og lítill fíflavöndur. Sex dögum síðar er litla drengnum Kim rænt úr rúminu sínu um miðja nótt. Fljótlega er líki hans skilað og á því er miði þar sem stendur: „ÞAR FÉKKSTU MAKLEG MÁLAGJÖLD.”
Inger Johanne Vik vinnur við rannsóknir. Hún er jafn miður sín yfir barnsránunum og aðrir í nágrenninu en þegar Yngvar Stubø, yfirmaður í rannsóknarlögreglunni í Osló, biður hana um aðstoð við að upplýsa málið neitar hún í fyrstu þótt hún hafi starfað í FBI og sé bæði lögfræðingur og sálfræðingur að mennt. En þegar enn eitt barnið hverfur úr strætisvagni nr. 20 í Osló, á háannatíma og án þess að nokkur hafi séð neitt óvanalegt, taka málin nýja stefnu…

Anne Holt er einn frægasti sakamálahöfundur Norðmanna. Bækur hennar hafa verið gefnar út í 25 löndum og hafa selst í meira en fjórum milljónum eintaka. Skoski glæpasagnahöfundurinn Val McDermid hefur lýst bókum hennar á þann veg að hún nái að fanga myrkur Norðurlandanna með raunverulegum hætti.


Glæpsamlega vel skrifað.
(Christopher Hals Gylseth, Dagbladet)
Ótrúlega spennandi, óhugnanleg og einstaklega grípandi saga.
(Anne Shäffer, Bergens Tidende)
Það sem mér ber er án vafa besta glæpasaga Anne Holt.
(Tone Solberg, Dagens Næringsliv)


Verð 2.490 kr. Netverð 1.990 kr.
Fleiri bækur eftir sama höfund

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica