Beint í leiðarkerfi vefsins.
Stefanía G. Gísladóttir er gift áströlskum manni og eiga þau 4 börn. Eftir 10 ára búskap í Seldal, fluttu þau til Vestur-Ástralíu og eru nú búsett í þorpinu Kendenup. Hún hefur áður sent frá sér nokkrar bækur. Hér fléttar hún saman endurminningar og stemmingar úr umhverfi sínu í ólíkum heimsálfum.
Kilja
Stefanía Guðbjörg Gísladóttir er fædd í Seldal, Norðfirði árið 1959 og alin upp í níu systkina hópi. Hún er sjúkraliði að mennt og hefur unnið fjölbreytileg störf, þ.á,m. við búskap. Stefanía er náttúrubarn og hefur næma tilfinningu fyrir leik að orðum og andstæðum.
Án spora
Ljóðið
skýst inn í tötralegan
hvunndaginn
skrýðir hann
gliti
hverfur sporlaust
Fregn
Óforvarendis
skullu á ljósaskipti
um hábjartan dag
hljóðlega grét mosinn
blóðtárum
yfir nærliggjandi lyng
ég sé geisla
gægjast úr skýi
glitra dögg
í óförnum sporum
er sækir þú á brattann
systir.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011