Beint í leiðarkerfi vefsins.
Guðrún Hannesdóttir er löngu kunn fyrir barnabækur sínar og myndskreytingar. Auk þess hefur hún lengi unnið að því að safna gömlum vísum fyrir börn. Fléttur eru fyrsta ljóðabók hennar. Aðeins örfá ljóð hennar hafa áður birst á prenti. Árið 2007 hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör í samnefndri ljóðakeppni fyrir ljóðið Offors.
Kilja
Firn
Þær vaxa ómunahægt
svo marglitar
í myrkrinu
fléttur á steini
aðsópsminnstar
og öllum eldri
stíga þær kyrrðardansinn
við hjartslátt himindjúpanna
öll vitni
víðs fjarri.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011