Beint í leiðarkerfi vefsins.
Höfundur: Þóra Jónsdóttir frá Laxamýri
Þóra Jónsdóttir frá Laxamýri er ein athyglisverðasta samtímaskáldkona okkar. Hún yrkir meðal annars um ástina, náttúruna og órjúfanleg tengsl við fortíðina. Fyrsta ljóðabók Þóru, Leit að tjaldstæði, kom út 1973, en síðan hefur hún sent frá sér átta bækur auk ljóðaþýðinga. Landið í brjóstinu er safn úrvalsljóða úr öllum bókunum.
Harðspjalda
Ljóðin hafa sterkan heildarsvip, skapa djúp hughrif og koma sífellt á óvart.
Landið í brjóstinu
Oft er erfitt
að bera landið í brjóstinu
brimsorfið og veðrað
fátt um afdrep
Jökulkróna þess er þung
hjartað brennandi
birtan skær og nóttin löng
Sagan eins og samgróningur
í brjóstinu
Suma morgna
er sagan og landið
sterk frjáls og gagnsæ
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011