forlag með sál

Orðayndi

Kristján Hreinsson

Á tímum þrenginga blómstrar ástin. Fólk virðist frekar finna hjá sér þörf fyrir að deila hugsunum og tilfinningum með ástvinum. Bókinni fylgir umslag, en hún í mjóu kiljubroti og því tilvalin til að senda ástrík orð í pósti.

Kilja

Hekla Björk Guðmundsdóttir listakona á heiðurinn að kápumyndinni og Guðrún Birna Ólafsdóttir hannaði og braut um.


Fullt verð: 1990netverð: 1290


HUGARBLÓM
 
úti nötraði ískaldur vindur
en ylur þinn
fór um hjarta mitt
 
sem sálarfluga
saug ég hunang
úr hugarblómi þínu
 
að sættast við myrkrið
er ekkert mál
ef ljósið í augum þínum
fer ekki frá mér
 
saman reynum við
að gleðjast yfir því
sem við áttum
og við grátum síst
það sem við eigum ekki
 
ég er sáttur við þig
sama hvert útlitið er
en mér er ekki sama
hvernig þér líður
innst inni

Verð 1.990 kr. Netverð1.290 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica