forlag með sál
Passíusálmar

Passíusálmar

Einstaklega falleg útgáfa af þessu klassíska meistaraverki Hallgríms Péturssonar. Hönnun bókar og kápu var í höndum Halldórs Þorsteinssonar. Prentsmiðjan Oddi annaðist umbrot.

Harðband

Við útgáfuna er farið eftir 70. og 71. prentunum sálmanna frá 1977 og 1987, sem Helgi Skúli Kjartansson, sagnfæðingur, annaðist. Útgáfan er örlítið löguð að nútímastafsetningu. T.d. er fækkað kommum og ritað s í stað z. Að öðru leyti er hinn forni ritháttur látinn halda sér eins og verið hefur.

 

 

1. sálmur

Um herrans Kristí útgang í grasgarðinn


1. Upp, upp, mín sál og allt mitt geð,
    upp mitt hjarta og rómur með,
    hugur og tunga hjálpi til.
    Herrans pínu ég minnast vil.

  
2. Sankti Páll skipar skyldu þá,
    skulum vér allir jörðu á
    kunngjöra þá kvöl og dapran deyð,
    sem drottinn fyrir oss auma leið.

 
3. Ljúfan Jesúm til lausnar mér
    langaði víst að deyja hér.
    Mig skyldi og lysta að minnast þess
    mínum drottni til þakklætis.

 

 

Verð 3.990 kr. Netverð 2.990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica