forlag með sál

Afleggjarinn - kilja

Auður A. Ólafsdóttir

Ungur maður sem er svo að segja alinn upp í gróðurhúsi á brýnt erindi til afskekkts staðar í útlöndum. Heima skilur hann eftir aldraðan föður, þroskaheftan bróður og guðdómlegt stúlkubarn sem han eignaðist óvart "með eins konar vinkonu vinar síns". Þar tekur lífið á sig nýja mynd og söguhetjan tekst á við karlmennsku sína, ástina, rósarækt og óvænta ábyrgð.

Kilja

Afleggjarinn hlaut bæði Menningarverðlaun DV í bókmenntum og Bókmenntaverðlaun kvenna, Fjöruverðlaunin árið 2008.

Auður A. Ólafsdóttir hefur gefið út þrjár skáldsögur: Upphækkuð jörð (1998), Rigning í nóvember (2004) og Afleggjarinn (2007). Hún er lektor í listfræði við Háskóla Íslands. Bókstafurinn A. í millinafni höfundar stendur fyrir Ava sem er kaþólskt skírnarnafn Auðar. Heilög Ava var blindur miðaldadýrlingur.


Læknablaðið birti skemmtilegt viðtal við Auði um Afleggjarann.


"Tvímælalaust ein af sterkustu skáldsögum ársins."
(B. Þ. V. Morgunblaðið)
„Afleggjarinn rífur sig úr viðjum hins hefðbundna en um leið er sagan uppfull af trúarlegum táknum, listfræðilegum vísunum og heimspekilegum átökum um tilvist mannsins. Hér er sleginn nýr tónn í íslensku samhengi.“
(Dómnefnd Menningarverðlauna DV)

„Áhrifamikil saga sem kemur á óvart með karllýsingu sem hlýtur að teljast ný
 í íslenskum bókmenntum.“
(Dómnefnd Fjöruverðlaunanna)

Verð 1.990 kr. Netverð1.590 kr.
Fleiri bækur eftir sama höfund





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica