Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ung kona sem talar 11 tungumál stígur upp úr volgri hjónasæng. Hún tekur að sér heyrnarlaust barn og heldur í ferðalag með happdrættisvinning í hanskahólfinu. Á leið hennar í nóvemberþoku verða þrír karlmenn og nokkur dýr. Bókin hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og var tilnefnd til Menningarverðlauna DV í bókmenntum.
Kilja
Auður A. Ólafsdóttir hefur gefið út þrjár skáldsögur: Upphækkuð jörð (1998), Rigning í nóvember (2004) og Afleggjarinn (2007). Hún er lektor í listfræði við Háskóla Íslands. Bókstafurinn A. í millinafni höfundar stendur fyrir Ava sem er kaþólskt skírnarnafn Auðar. Heilög Ava var blindur miðaldadýrlingur.
„Og stíllinn er meistaralegur. Kaldhamraður og beittur, algerlega stælalaus og engu orði ofaukið. Geri aðrir betur ... Einn athyglisverðasti íslenski höfundur sem ég hef lesið lengi.“ (F.B. Morgunblaðið)
„Verulega vel skrifuð saga ... frumleg ... dularful ... óvenjuleg.“ (J.Y.J. Kastljós)
„Rigning í nóvember fjallar um unga nútímakonu í hjónabandi sem raknar sundur m.a. vegna þess að hún vill ekki eiga barn með manninum. Litlu seinna felur einstæð og ólétt vinkona henni að gæta fjögurra ára heyrnarskerts sonar síns yfir helgi en það dregst á langinn. Konan og drengurinn leggja upp í ferðalag um myrkt og blautt landið. Þar með hefst leit að týndum þræði og stefnumót við heim handan orða. Sagan er í senn ástar-, ferða- og þroskasaga, lýsingar eru myndrænar, persónusköpun sterk og stíllinn bæði lipur og hnyttinn. Rigning í nóvember er önnur skáldsaga höfundar." (Úr umsögn dómnefndar Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar)
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011