forlag með sál

Glerhjálmurinn

Sylvia Plath

Þýðandi: Fríða Björk Ingvarsdóttir

Sylvia Plath var eitt virtasta skáld seinni hluta 20. aldar í Bandaríkjunum. Saga hennar, Glerhjálmurinn, er áhrifamikil lýsing á reynslu einstaklings sem ratar eftir miklar hremmingar út úr myrkviðum dýpstu sálarangistar - og endurfæðist í andlegum skilningi. Þessi margslungna saga er talin ein merkasta perla heimsbókmenntanna.

Kilja

Esther er skarpgreind og glæsileg, eins og klippt út úr kvennablaðinu sem hún vinnur hjá, en sjálfstraustið er í molum. Hún þráir að verða rithöfundur en finnur ekki fótfestu í samfélagi þar sem gildi karla eru ráðandi. Bilið milli sjálfsmyndarhennar og þess sem ætlast er til af henni breikkar stöðugt þar til hún missir loks tengsl við veruleikann.

Lýsinguna á þrúgandi andrúmslofti geðsjúkdómsins undir glerhjálminum byggir Sylvia Plath á eigin reynslu. En galdur sögunnar liggur í hinum listræna búningi sem hún færir hana í, látlausum stílnum og afhjúpandi fáránleika. Vitundarkreppa Estherar er samofin siðferðiskreppu bandarísks þjóðfélags og ekki síst þeim blekkingarleik sem konur eru ofurseldar.

Fríða Björk Ingvarsdóttir íslenskaði og ritaði eftirmála.

Verð 1.990 kr. Netverð690 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica