forlag með sál

Erlendar skáldsögur

Brekkan

Höfundur: Carl - Frode Tiller

Þýðandi: Kristján Guttesen

Brekkan er afar áhrifamikil verðlaunasaga um ungan mann sem dvelur á réttargeðdeild. Hann skrásetur brotakenndar minningar sínar uns til verður heildarmynd af einstaklingi sem dregur lesandann í kæfandi heim geðveikinnar. Bókin skilur eftir samúð og skilning og opnar augu lesandans fyrir vanda þeirra sem glíma við geðveiki.

Meira
990 kr.

Bulgari sambandið

Fay Weldon

Þýðandi: Þórunn Hjartardóttir

Bulgari sambandið er jafn ekta og skartgripirnir frá Bulgari. Þetta er saga um ástir og örlög, afbrýði, losta og græðgi. Völd, hefnd, mútur og mafíu, nunnur og drauga. Konur og karlar takst á, atburðarásin er ófyrirsjáanleg og loks stendur ekki steinn yfir steini. Húmorinn og háðið sem Fay Weldon er frægust fyrir er allsráðandi. Henni er ekkert heilagt!

Meira
690 kr.

Draumaveröld kaupalkans

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Viltu koma með í brjálað búðaráp með Rebeccu Bloomwood? Viltu kynnast ástum hennar og örlögum? Rebecca er kaupóður lygalaupur sem heillar lesendur með meinfyndnum uppátækjum og dagdraumum sem ná ekki nokkurri átt ... eða hvað?Hér kemur fyrsta af nokkrum metsölubókum um gelluna sem leynist í hjarta okkar allra ...

Meira
1.450 kr.

Dætur hússins

Höfundur: Michéle Roberts

Íslensk þýðing: Fríða Björk Ingvarsdóttir

Thérese og Léonie læðast um gamla húsið í Normandy og grufla í fortíðinni. Upp á yfirborðið koma ýmis óþægileg leyndarmál frá gamalli tíð sem hafa afgerandi áhrif á viðkvæmar sálir og móta líf þeirra upp frá því. Þegar frænkurnar hittast eftir tuttugu ára aðskilnað gera hinar sáru minningar samfundinn nær óbærilegan. Grímurnar falla og þær verða að gera upp fortíðina.

Meira
990 kr.

Engillinn hennar Grétu

Höfundur: Marita van der Vyver

Íslensk þýðing: Rannveig Jónsdóttir

Gréta er týnd í skóginum. Maðurinn hennar hefur sparkað henni út, hún er búin að missa barnið sitt og var að því komin að stinga höfðinu inn í bakarofninn - en hvað sem á gengur glatar hún ekki sinni kómísku sýn á tilveruna. Hún er að byggja upp nýtt líf með vinum sínum og ættingjum, bæði látnum og lifandi.

Meira
690 kr.
 

Glerhjálmurinn

Sylvia Plath

Þýðandi: Fríða Björk Ingvarsdóttir

Sylvia Plath var eitt virtasta skáld seinni hluta 20. aldar í Bandaríkjunum. Saga hennar, Glerhjálmurinn, er áhrifamikil lýsing á reynslu einstaklings sem ratar eftir miklar hremmingar út úr myrkviðum dýpstu sálarangistar - og endurfæðist í andlegum skilningi. Þessi margslungna saga er talin ein merkasta perla heimsbókmenntanna.

Meira
690 kr.

Hljómið eitt

Sandra Benítez

Sögusviðið er El Salvador á árunum 1932 til 1977 þar sem þrjár kynslóðir kvenna flétta sér ólík örlög. Annars vegar eru það bláfátækar Pipil-indíánakonur og hins vegar hvítar og auðugar eiginkonur plantekrueigenda. Þótt himinn og haf skilji að þá heima sem þær lifa í, þá eiga þær ýmsa mannlega þræði sameiginlega. Meira
990 kr.

Í hlýjum skugga

Höfundur: Lotta Theil

Þýðandi: María Sigurðardóttir

Eva lifir í tveimur heimum - en á sér bara eitt líf. Á daginn þvælist hún um undirheima Stokkhólms til að kaupa heróínskammtinn sinn en á nóttunni er hún vörður í öryggismiðstöð, tilbúin í útkall. Þetta er saga um fíkn, ást, vináttu, sorg og einmanaleika. Bókin hefur vakið gríðarlega athygli og eftir henni hefur verið gerð kvikmynd.

Meira
490 kr.

Kaupalkinn í New York

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Sjálfstætt framhald af hinni geysivinsælu bók um Draumaveröld kaupalkans, um hina jákvæðu og hrifnæmu Becky, sem segir kannski ekki alltaf alveg satt, en er samt alltaf jafn einlæg og heillandi.

Meira
1.450 kr.

Leyndarmál Lorelei

Höfundur: Carolyn Parkhurst

Þýðandi: Anna M. Sigurðardóttir

Hvað gerir maður sem missir eiginkonu sína eftir kjánalegt fall úr eplatré? Eina vitnið að þessum harmleik er Lorelei, en hún er ekki til viðræðu um það sem gerðist, enda hundur. - Og hvað er þá til ráða?

Meira
990 kr.
 

Manstu mig?

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Aldís Björnsdóttir

Bók eftir Sophie Kinsella, höfund metsölubókanna um kaupalkann síglaða. Sagan um Lexí og hennar litríku fjölskyldu, vini - og ástmenn er ógleymanlega fyndin ástar- og harmsaga sem engin alvöru skvísa má missa af.

Meira
1.450 kr.

Vatnsmelónusykur

Höfundur: Richard Brautigan

Þýðandi: Gyrðir Elíasson

Vatnsmelónusykur er saga um ást og svik í undarlegum heimi þar sem húsin eru gerð úr steinum og vatnsmelónusykri og sólin skín í ólíkum litum sérhvern dag.

Meira
490 kr.

Vesturfararnir

Vilhelm Moberg

Hér er endurútgefinn fyrsti hluti hins heimfræga og áhrifamikla verks Vilhelms Moberg um fjölskylduna sem flutti frá Smálöndum í Svíþjóð vestur um haf og hóf nýtt líf í Ameríku um miðja 19. öld. Ógleymanlegt verk öllum sem sáu sjónvarpsþættina vinsælu.

Meira
3.490 kr.

Vesturfararnir - kilja

Vilhelm Moberg

Hér er endurútgefinn fyrsti hluti hins heimfræga og áhrifamikla verks Vilhelms Moberg um fjölskylduna sem flutti frá Smálöndum í Svíþjóð vestur um haf og hóf nýtt líf í Ameríku um miðja 19. öld. Ógleymanlegt verk öllum sem sáu sjónvarpsþættina vinsælu.

Meira
2.290 kr.

Það sem mér ber

Ótrúlega spennandi, óhugnanleg og einstaklega grípandi saga.” (Anne Shäffer, Bergens Tidende) „Glæpsamlega vel skrifað.” (Christopher Hals Gylseth, Dagbladet) „Það sem mér ber er án vafa besta glæpasaga Anne Holt.” (Tone Solberg, Dagens Næringsliv) Meira
1.990 kr.
 




Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica