Valmynd.
Bókin fjallar um tilfinningar sorgarinnar, líkamleg einkenni, verkefni sorgarinnar, um sorgarviðbrögð barna og umhverfis þeirra, um sorgarviðbrögð foreldra, fjölskyldusögu, fósturlát, andavana fæðingu, missi barna við aðrar aðstæður en dauða, um útfararþjónustu, um missi maka við skilnað og missi maka við dauða, um hvað fagfólk ætti að hafa að leiðarljósi, þegar andlát er tilkynnt og/eða stuðningur veittur eftir áföll, um sorgarsamtök og starfsemi þeirra, um skerta líkamsímynd, um atvinnumissi, um missi innan fjölskyldunnar, um tengslin á milli hvers kyns breytinga og tilfinningaviðbragða og um trúna og missinn.