Beint í leiðarkerfi vefsins.
DVD: Heimildamyndin um Leyndarmálið
Vegleg heimildamynd um The Secret er fáanleg á ensku hjá Sölku. Áhorfandinn er leiddur áfram í gegnum viðtöl við höfunda, reynslusögur fólks sem hefur notað Leyndarmálið til að sigrast á erfiðleikum eða ná árangri og ýmsa spekinga sem hafa rannsakað fyrirbrigðið.
DVD
Kjarni Leyndarmálsins felst í lögmáli aðdráttaraflsins sem er óbreytanlegt líkt og önnur náttúrulögmál. Allt sem gerist í lífinu löðum við að okkur. Ef við náum að stilla tilveruna og það sem við viljum öðlast á sömu tíðni, getum við kallað til okkar betra líf, andlegt og veraldlegt.
Leyndarmálið felur í sér þekkingu fræðimanna, kvenna og karla, sem hafa nýtt sér lögmálið. Áhrifaríkar frásagnir lýsa hvernig þau beittu Leyndarmálinu við að uppræta sjúkdóma, öðlast auðæfi og sigrast á hvers konar hindrunum til að afreka það sem margir myndu telja óhugsandi.
Athugið að myndin er ótextuð.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011