forlag með sál

Hljóð og mynd

Benni og ég

Höfundur: Robert Lawson

Þýðandi og lesari: Bryndís Viglundsdóttir

Benni - Benjamín Franklin er einn af merkustu mönnum þjóðar sinnar. Mikið hefur verið rætt og skrifað um hann en ein er sú bók sem sker sig úr og það er bókin sem músin Amos skrifaði um Benna og samskipti sín við hann.

Meira
1.990 kr.

Blöndukúturinn

Lesari: Bragi Þórðarson

Þessi bók hefur að geyma frásagnir af eftirminnilegum atburðum og skemmtilegu fólki, sem tengist Akranesi og Borgarfirði. Sagt er frá baróninum á Hvítárvöllum, náttúruperlunum Akrafjalli og Elínarhöfða, frækilegum björgunarafrekum, ferð Hjalta Björnssonar til Íslands með þýskum kafbáti á stríðsárunum og fangavist hans í Bretlandi. Einnig er þáttur af skemmtistaðnum Báruhúsinu á Akranesi.

Meira
3.000 kr.

Emil í Kattholti

Astrid Lindgren

Þýðing: Vilborg Dagbjartsdóttir

Lesari: Bessi Bjarnason

Tveir geisladiskar með bráðskemmtilegu efni um prakkarann Emil í Kattholti. Vönduð þýðing. Skemmtilegur flutningur.

Meira
1.500 kr.

Fyrst ég gat hætt getur þú það líka - hljóðbók

Valgeir Skagfjörð

Bókin vinsæla Fyrst ég gat hætt er nú fáanleg á hljóðbók sem höfundurinn Valgeir Skagfjörð leikari les. Valgeir hefur hjálpað mörgum að taka þá stóru ákvörðun að drepa í fyrir fullt og allt. Hér deilir hann reynslu sinni af því að hætta reykingum fyrir fullt og allt.

Meira
1.490 kr.

Jólasögur

Bryndís Víglundsdóttir

Bryndís skrifar sniðugar sögur um jólasveina: Jólabaðið, Jólasveinarnir í Hamrahlíð og Grýla á fæðingadeildinni. Og nú hefur hún lesið sögurnar inn á hljómdisk. Er nokkuð notalegra en að hlusta á skemmtilegar og jólalegar sögur á aðventunni? Meira
1.000 kr.
 

Kraftur - Síðasti spretturinn

Tóti og Kraftur eru miklir félagar og sigursælt par á keppnisvöllum á Íslandi. Þeim stendur til boða að taka þátt í Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi og Tóti þarf að taka erfiðustu ákvörðunina á ferli sínum. Sönn saga um einlægt samband manns og hests. Meira
2.500 kr.

Lífskraftur á landi og sjó

Lesari: Bragi Þórðarson

Í þessari bók eru sögur af kraftmiklu og viljasterku fólki, sem lét verkin tala og setti svip á samtíð sína. Höfundur bókarinnar, Bragi Þórðarson, hefur ritað fjölda bóka um atburði og fólk á fyrri tíð.

Meira
1.490 kr.

Ótuktin hljóðbók

Höfundur: Anna Pálína Árnadóttir

Ótuktin þaut beint á metsölulista þegar hún kom út vorið 2004 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Anna Pálína greindist með krabbamein 39 ára gömul. Samfara hefðbundinni krabbameinsmeðferð notfærði hún sér hugleiðslu og óhefðbundnar lækningar.

Meira
1.290 kr.

Postulín - hljóðbók

Freyja Haraldsdóttir & Alma Guðmundsdóttir

Hljóðbók, 7 geisladiskar, 8 klukkustundir. Nýtt líf tilnefndi Freyju Haraldsdóttur konu ársins 2007. Í umfjöllun blaðsins um Freyju segir að hún sé ein af hetjum samtímans. Baráttukona með ríka réttlætiskennd sem hefur helgað líf sitt því að breyta viðhorfum til fólks með fötun og stuðla að því að samfélagið geri ráð fyrir öllum. Fyrst og fremst er hún þakklát fyrir lífið og ákveðin í að njóta þess til hins ýtrasta.

Meira
1.490 kr.

Slökun fyrir þig - Fjallgangan

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.
 

Slökun fyrir þig - Fyrirgefningarmusterið

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.

Slökun fyrir þig - Ströndin

Slökunardiskur með sjálfstyrkingu og róandi tónlist. Þessi diskur er tileinkaður öllum þeim sem vilja bæta líðan sína. Meira
2.500 kr.

Sögur af Munda

Bryndís Víglundsdóttir

Mundi átti heima fyrir vestan þegar hann var lítill strákur. Ýmislegt dreif á daga hans þegar hann var að alast upp sem er áreiðanlega frábrugðið daglegu lífi nútímabarna. Meira
1.990 kr.

The Secret DVD

Rhonda Byrne

DVD: Heimildamyndin um Leyndarmálið

Vegleg heimildamynd um The Secret er fáanleg á ensku hjá Sölku. Áhorfandinn er leiddur áfram í gegnum viðtöl við höfunda, reynslusögur fólks sem hefur notað Leyndarmálið til að sigrast á erfiðleikum eða ná árangri og ýmsa spekinga sem hafa rannsakað fyrirbrigðið.

Meira
1.990 kr.

Þjóðsögur Jóns Árnasonar

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Þjóðsögur Jóns Árnasonar eru öllum Íslendingum vel kunnar og sama má segja um þau velvöldu ævintýri sem einnig er að finna á þessum vönduðu geisladiskum.

Meira
1.690 kr.
 

Ævintýri H.C. Andersen 1

Höfundur: H.C. Andersen

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Tveir geisladiskar með völdum þekktum ævintýrum eftir ævintýraskáldið mikla H.C. Andersen i vönduðum flutiningi Heiðdísar Norðfjörð. Steingrímur Thorsteinsson íslenskaði.

Meira
1.690 kr.

Ævintýri H.C. Andersen 2

Höfundur: H.C. Andersen

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Tveir geisladiskar með völdum þekktum ævintýrum eftir ævintýraskáldið mikla H.C. Andersen i vönduðum flutiningi Heiðdísar Norðfjörð. Steingrímur Thorsteinsson íslenskaði.

Meira
1.690 kr.




Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica