Viðmiðunarverð: 3990 – Tilboðsverð í 10 daga: 1990
Í hugum margra Íslendinga tengist
þorrinn svartamyrkri, viðsjálum veðrum og gömlum mat. Eftir að þær
stöllur, Ragnhildur Gísladóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir, kynntu sér
þorrahefðina, fannst þeim tilvalið að gera henni hærra undir höfði og
útfæra á nútímavísu. Bókin Velkominn Þorri kynnir nýstárlegar leiðir
til að gera sér dagamun í kalda mánuðinum sem kenndur er við
vetrarvættinn Þorra. Þar er einnig að finna margvíslegan fróðleik um
þorrann og matarvenjur Íslendinga ásamt viðtölum við fólk sem átt hefur
þátt í að skapa og viðhalda þorrahefðinni.
Það er sárt til þess að hugsa að
þekkingin og sérstaðan sem lýtur að íslenskri matarhefð gleymist. Með
því að líta um öxl og skoða aðstæður og vinnulag forveranna, varpa
höfundar ljósi á dugnað og harðfylgi genginna kynslóða sem speglast
skýrt í matarmenningu þjóðarinnar.
Velkominn Þorri inniheldur einnig
uppskriftir úr Kvennafræðaranum og Einfalda matreiðsluvasakverinu fyrir
heldri manna húsfreyjur
Þær Ragnhildur og Steinunn stíga svo
skrefinu lengra og benda á ýmsar skemmtilegar og nýstárlegar leiðir til
að halda þorra með viðeigandi föndri og þorraskrauti sem flikkar heldur
betur upp á híbýlin og þorraborðhaldið. Til að auka enn á stemmninguna
birtast í bókinni í fyrsta skipti nótur fyrir tvö ný þorralög eftir
Ragnhildi við texta Steinunnar.
Ljósmyndir tók Sigurjón Ragnar Sigurjónsson, Margrét Laxness sá um umbrot og hönnun.
