forlag með sál

Konur eiga orðið 2010

Dagatalsbókinni Konur eiga orðið 2010 er ritstýrt af Kristínu Birgisdóttur og Myrra Leifsdóttir hannaði og myndskreytti. Auk þess að vera aðgengileg skipulagsbók í hvunndagserlinum er her að finna í byrjun hverrar viku og mánaðar, alls 64 hugrenningar kvenna á öllum aldri og úr öllum þjóðfélagsstéttum.

Harðspjalda

Síðustu tvö árin rann hluti af ágóða sölu bókarinnar til rannsókna á þunglyndi kvenna á Íslandi. Í ár fannst okkur við hæfi að láta hluta ágóðans renna til Mæðrastyrksnefndar en þar starfa hetjur sem aðstoða og hjálpa fjölskyldum sem eiga um sárt að binda. Í ár hefur slíkum fjölskyldum fjölgað svo um munar. Aftast í bókinni má því finna pistil eftir Ragnhildi G. Guðmundsdóttur, formann nefndarinnar, þar sem hún fer lauslega yfir sögu samtakanna og starfsemi.

Undanfarið hefur Salka gefið út nokkrar “grænar” bækur, en við höfum tröllatrú á að grænn lífsstíll geri ekki bara jörðinni og heilsu okkar gott, heldur getum við líka sparað og bætt efnahaginn með því að taka græn skref saman.

                                                           tilbod

Viðmiðunarverð: 2990 – Tilboðsverð í 10 daga: 1490



agust-6



opna




"Hjúskaparmakaðurinn er ólíkur vinnumarkaðnum – fjölbreytt reynsla er ekki alltaf mikils metin"

Valgerður Halldórsdóttir



"Draumar eru eins og blöðrur. Ef við sleppum þeim takinu fjúka þeir í buskann en ef við höldum í þá geta þeir hafið okkur á flug."

Halla Þórlaug Óskarsdóttir



Verð 1.490, kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica