forlag með sál

Hugmyndabók

Fredrik Härén

Höfundur: Fredrik Härén

Íslensk þýðing: Haraldur Jónsson

Þetta var góð hugmynd – skrifaðu hana niður! Þessi bók er byggð á þeirri forsendu að góðar hugmyndir fæðist ekki af sjálfu sér; það verður að lokka þær út. Innblástur og brennandi áhugi eru tvær pottþéttar aðferðir til að draga þær fram í dagsljósið.

Harðspjalda

Og það er einmitt tilgangur bókarinnar sem þú ert núna með milli handanna: Að veita þér innblástur og hvatningu til að fá og skrifa niður fullt af hugmyndum.

Í bókinni eru yfir 60 fljótlesnir, hugljómandi kaflar um sköpun og fjöldinn allur af viðeigandi tilvitnunum í snilllinga eins og Albert Einstein og Ingvar Kamprad (stofnanda IKEA). Hverjum kafla lýkur á verkefni sem er ætlað til að hjálpa lesandanum að tengjast sínum eigin sköpunarbrunni.

Í bókinni eru einnig 150 auðar síður, sem eru fráteknar fyrir þínar eigin hugmyndir! Þegar þú ert búin(n) að fylla bókina þína með athugunum, punktum, skissum og hugmyndum, þá áttu stútfulla hugmyndabók.

Heimasíða bókarinnar er: www.interesting.org/ideabook

Verð 2.990 kr. Netverð2.190 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica