forlag með sál

Ýmislegt

1001 leið til að slaka á

Susannah Marriott

Þýtt og staðfært: Aðalheiður Ploder. 

Stjórnast líðan þín af streitu og álagi? 1001 heilræði fyrir fólk sem hefur engan tíma til að slaka á! Í bókinni eru stuttir, hvetjandi og uppbyggilegir kaflar sem gott er að grípa til. Bók sem lætur þér líða vel... þú átt það skilið.

Meira
2.490 kr.

Aftur í form - 10 vikna endurhæfing fyrir nýbakaðar mæður

Höfundur: Sally Lewis

Íslensk þýðing: María Hrönn Gunnarsdóttir

Hér er að finna fjölda góðra ráða til að komast í form eftir meðgöngu og fæðingu. Í bókinni er 10 vikna endurhæfingaráætlun, skipulögð af sérfræðingi, og miðast við að konan nái sínum fyrri andlega og líkamlega styrk sem allra fyrst.

Meira
1.490 kr.

Baráttan fyrir börnin - Reynslusaga móður af einhverfu

Karen Kristín Ralston

Karen Kristín er Bandaríkjamaður, búsett á Íslandi og tvö fjögurra barna hennar hafa verið greind með einhverfu. Baráttan fyrir börnin er persónuleg saga hennar og fjölskyldu hennar í baráttu þeirra við þennan erfiða og einstaklingsbundna sjúkdóm. Meira
1.490 kr.

Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar

Hildur Hákonardóttir

Blálandsdrottningin hefur líklega borist hingað með frönskum skútum. Hún er ein af mörgum afbrigðum hinnar auðmjúku kartöflu sem hefur verið í öndvegi á borðum Íslendinga alla tuttugustu öldina. Nafn bókarinnar vísar þó einnig til hinnar hugrökku og hjartastóru söguhetju sem varð fyrst kvenna á Íslandi til að hafa tekjur af kartöflurækt.

Meira
2.490 kr.

Borða, biðja, elska

Elizabeth Gilbert

Íslensk þýðing: Herdís Magnea Hübner

Bókin hefur setið í efstu sætum á metsölulista bæði vestan hafs og austan og hlotið einróma lof. Hún er í senn ferðasaga, uppbyggileg sjálfsskoðun og ástarsaga sem sögð er af mikilli glettni, djúpu innsæi og spriklandi frásagnargleði.

Meira
2.490 kr.
 

Burt með draslið

Rita Emmett

Íslensk þýðing: Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir

HENDA - GEFA - GEYMA eru töfraorð draslbanans. Í þessari bók bendir Rita Emmett á árangursríkar leiðir til að hreinsa til í eigin ranni. Hún gefur bráðsnjöll ráð um það hvernig má kála draslinu og gera snyrtilegt í kringum sig og segir dæmisögur sem koma okkur á sporið.

Meira
1.490 kr.

Cards of Fortune

Sigríður Klingenberg

- with Icelandic Stones.

You can ask the cards about the future. It´s good that the number of cards you draw matches the number of letters in your name, or the name of the person you inquire.

Meira
2.490 kr.

Cards Will Tell

Sigríður Klingenberg

... just ask the cards!

The cards offer a nice and entertaining way for you to receive answers to all kinds of questions.

Meira
2.490 kr.

Dagatal 2010

Eldhúsdagbókin 2010

Dagatalið hannaði Helgi Hilmarsson og eru það hreinasta nauðsyn í hverju íslensku eldhúsi. Hver mánuður er myndskreyttur matartegund og nöfn hinna ýmsu ávaxta, grænmetis, bauna og kryddjurta skráð við hverja mynd. Skemmtilegt, fræðandi og fallegt í gjöf eða heim á eigin vegg. Meira
750 kr.

Dagbók barnsins fyrstu árin

Myndskreyting: Erla Sigurðardóttir

Þegar barn fæðist er nánst hvert atvik minnisvert, hvort sem um er að ræða þroska, líkamlegan eða andlegan, gleði eða sorg, myndir og minningar. Bókin gefur tækifæri til að skrá niður helstu viðburði í lífi barnsins, allt frá fæðingu til fyrsta skóladags.

Meira
1.590 kr.
 

Dömufrí

Höfundur: Jónína Benediktsdóttir

Jónína Ben er þekkt baráttukona úr íslensku þjóðlífi og vinsæll fyrirlesari. Hvatningarnámskeið hennar, Konur í kjafti karla, vöktu mikla athygli en þessi bók er að hluta til byggð á þeim.

Meira
300 kr.

Eigðu við mig orð

Í bókinni Eigðu við mig orð - tilvitnanir um lífið og tilveruna er að finna tilvitnanir í formi ljóða, söngtexta, orðatiltækja og textabrota úr skáldsögum og viðtölum sem höfða ekki síst til ungs fólks.

Hildur Hermóðsdóttir og Kristín Birgisdóttir tóku saman.

Meira
1.950 kr.

Ég er Nojoud, 10 ára - fráskilin

Höfundur: Delphine Minoui

Þýðandi: Laufey S. Sigurðardóttir

Litla jemenska stúlkan Nojoud sýndi ótrúlegan kjark þegar hún óskaði eftir skilnaði og reis þar með upp gegn fornum hefðum í landi sínu.

Meira
2.990 kr.

Fiskur

Stephen Lundin, Harry Paul og John Christensen

Íslensk þýðing: Sigríður Á. Ásgrímsdóttir

Bók sem kveikir neistann að starfsgleði og vellíðan. Höfundarnir, Stephen C. Lundin, Harry Paul og John Christensen, fengu hugmynd að bókinni þegar þeir kynntust í hinni feikivinsælu fiskbúð Pike Place í Seattle, Kanada. Í bókinni taka þeir á helstu vandamálum í stjórnun og starfsmannahaldi, svo sem starfsleiða og kulnun í starfi, og ýta undir bjartsýni og vinnugleði.

Meira
1.790 kr.

Fiskur - Kilja

Stephen Lundin, Harry Paul og John Christensen

Íslensk þýðing: Sigríður Á. Ásgrímsdóttir

Bók sem kveikir neistann að starfsgleði og vellíðan. Höfundarnir, Stephen C. Lundin, Harry Paul og John Christensen, fengu hugmynd að bókinni þegar þeir kynntust í hinni feikivinsælu fiskbúð Pike Place í Seattle, Kanada. Í bókinni taka þeir á helstu vandamálum í stjórnun og starfsmannahaldi, svo sem starfsleiða og kulnun í starfi, og ýta undir bjartsýni og vinnugleði.

Meira
1.490 kr.
 

Förðun - þín stund

Þuríður Stefánsdóttir

Förðun - þín stund inniheldur alla helstu grunntækni í förðun fyrir konur á öllum aldri, alveg frá þeim yngstu til þeirra elstu. Allar viljum við líta sem best út við þau margbreytilegu tilefni sem lífið hefur upp á að bjóða. Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun. Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun og nú er komið að þér að eiga þína eigin stund, njóta hennar og vera ánægðari með sjálfa þig á eftir!

Meira
2.500 kr.

Garður guðsmóður - munkaríkð Aþos, elsta lýðveldi í heimi

Höfundur: Sigurður A. Magnússon

Gríska munkríkið Aþos er einstakt í veröldinni. Þó að María guðsmóðir sé verndari þess hefur ekkert kvenkyns (nema fuglar og flugur) mátt koma þar inn fyrir landamærin síðan ríkið var stofnað árið 963. Aþos var skráð númer 179 á heimsminjaskrá UNESCO árið 1988.

Meira
1.490 kr.

Gildi nærklæðanna

Höfundur: Eyvör Ástmann

Í þessari nærbók sinni veitir hin ástsæla Eyvör Ástmann fræðslu um mál sem snerta viðkvæma og persónulega strengi. Nú kemur hún að fjölbreyttum eiginleikum nærklæðann, flokkun þeirra og litrófstáknmáli og minnir á hve nærfataval skipar snaran þátt í tjáningu og mennlegum samskiptum.

Meira
590 kr.

Goðsögnin

Fiann Paul

Þýðandi: Þorgrímur Þráinsson

Í Goðsögninni, sem er fyrsta bók höfundar, sameinast ljósmyndir hans og saga þar sem hann fjallar um persónulegan þroska í bland við reynslu sína og hughrif frá því hann bjó og starfaði í Himalajafjöllum.

Meira
3.990 kr.

Hlýjar hendur - vettlingauppskriftir

Ágústa Þóra Jónsdóttir

Í þessari gullfallegu bók birtast 53 uppskriftir að vettlingum og grifflum í öllum stærðum og gerðum handa unglingum, börnum og fullorðnu fólki, bókin er prýdd líflegum myndum og aðgengilegum teikningum sem gera fjölbreytilegt vettlingaprjón úr hinu rómaða kambgarni að leik einum. Meira
1.995 kr.
 

Hugmyndabók

Fredrik Härén

Höfundur: Fredrik Härén

Íslensk þýðing: Haraldur Jónsson

Þetta var góð hugmynd – skrifaðu hana niður! Þessi bók er byggð á þeirri forsendu að góðar hugmyndir fæðist ekki af sjálfu sér; það verður að lokka þær út. Innblástur og brennandi áhugi eru tvær pottþéttar aðferðir til að draga þær fram í dagsljósið.

Meira
2.190 kr.

Í hlýjum skugga

Höfundur: Lotta Theil

Þýðandi: María Sigurðardóttir

Eva lifir í tveimur heimum - en á sér bara eitt líf. Á daginn þvælist hún um undirheima Stokkhólms til að kaupa heróínskammtinn sinn en á nóttunni er hún vörður í öryggismiðstöð, tilbúin í útkall. Þetta er saga um fíkn, ást, vináttu, sorg og einmanaleika. Bókin hefur vakið gríðarlega athygli og eftir henni hefur verið gerð kvikmynd.

Meira
490 kr.

Íslensk steinaspáspil

Sigríður Klingenberg

Hægt er að spyrja spilin um komandi tíma. Gott er að fjöldi dreginna spila sé jafn fjölda stafa í nafni þess sem spyr, eða í nafni þeirrar persónu sem spurt er um. Meira
2.490 kr.

Jesús og Búdda - sami boðskapurinn

Jesús og Búdda. Hverjir voru þessir menn? Hvaðan komu þeir og hvað gerðu þeir? Í þessari bók mun ýmislegt koma lesandanum á óvart. Þrátt fyrir að þá skilji að fimm hundruð ár í tíma og þrjú þúsund mílur í rúmi eru ótrúlega margar hliðstæður í lífi þeirra og starfi. Meira
1.990 kr.

Konur eiga orðið 2010

Dagatalsbókinni Konur eiga orðið 2010 er ritstýrt af Kristínu Birgisdóttur og Myrra Leifsdóttir hannaði og myndskreytti. Auk þess að vera aðgengileg skipulagsbók í hvunndagserlinum er her að finna í byrjun hverrar viku og mánaðar, alls 64 hugrenningar kvenna á öllum aldri og úr öllum þjóðfélagsstéttum. Meira
990 kr.
 

Konur geta breytt heiminum - með nýjum lífsstíl

Guðrún G. Bergmann

Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og sveitarfélaga. Í þessari bók hvetur hún konur til að vinna saman og taka upp grænan lífsstíl.

Meira
1.990 kr.

Kúnstin að kyssa - leiðbeiningarit

Höfundur: Eyvör Ástmann

Bókin handa gæsinni og steggnum. Handa öllum sem elska húmor! Hér er lýst afbrigðum kossa í gamansömum tón, allt frá fipli upp í djúpa skrúfu. Kúnstin að kyssa er tilvalin bæði fyrir nýgræðinga og þá sem vilja auka þekkingu sína og færni.

Meira
590 kr.

Kærleikskorn

Guðrún G. Bergmann

Kærleikskornin eru hér í nýrri útgáfu en frá því þau komu fyrst út hafa þau selst í meira en 5000 eintökum. Deildu kærleikskornunum með sem flestum í kringum þig því þau henta við öll tækifæri. Meira
1.990 kr.

Legend

Fiann Paul

Legend is Fiann's first book combining his photography and writing. It focuses on personal growth and incorporates the experience and inspiration he gained from living and working in the Himalayas.

Meira
2.990 kr.

María Magdalena - Vegastjarna eða vændiskona?

Höfundur: Þórhallur Heimisson

Í þessari bók er farinn rannsóknarleiðangur aftur í aldir til að öðlast gleggri mynd af einni dularfyllstu persónu fornaldar. Maríu Magdalenu. Frá alda öðli hefur hún skipað sérstakan sess í huga fólks, bæði þeirra sem fylgdu söguskoðun kirkjunnar og efasemdamanna.

Meira
1.990 kr.
 

Náttúran.is - spil

Hönnun: Guðrún Tryggvadóttir og signý Kolbeinsdóttir 48 góð ráð fyrir þig og umhverfið. Náttúruspilin eru hugsuð sem einskonar "húsráð í handraðanum". Þau eiga að minna okkur á hvernig hægt er að bæta umgengni okkar við náttúruna og hvernig náttúran getur hjálpað okkur að lifa betra lífi. Meira
1.000 kr.

Njála lifandi komin

Jóhannes Eiríksson

Njála lifandi komin er á auðlesnu máli með gullfallegum ljósmyndum frá söguslóðunum. Jóhannes Eiríksson endursegir hér Njálu og tengir við söguslóðirnar með glæsilegum ljósmyndum. Efnið er kryddað með ljóðum eftir ýmsa þekkta höfunda. Jón Böðvarsson skrifaði eftirmála í bókina.

Meira
1.500 kr.

Postcards from the other side of Iceland - Where the Grass is Greener

Höfundur: Bruce McMillan

Fönguleg póstkortabók, full af gæsilegum ljósmyndum af náttúru Íslands og kennileitum, með hnyttnum athugasemdum frá höfundi The Problem With Chickens, Bruce McMillan. Spennandi og skemmtileg bók sem skartar ekta íslenskri náttúrufegurð.

Meira
1.290 kr.

Puffins from the other side of Iceland

Höfundur: Bruce McMillan

Falleg og skemmtileg póstkortabók frá Bruce McMillan, uppfull af ljósmyndum af lundanum víðsvegar um landið. 30 stórglæsilegar ljósmyndir prýða bókina með skemmtilegum staðreyndum um lundann og umhverfi hans á baki hvers korts. Spennandi og skemmtileg bók sem skartar ekta íslenskri náttúrufegurð.

Meira
1.290 kr.

Reykjavík barnanna / Childrens Reykjavík

Þórey Vilhjálmsdóttir og Lóa Auðunsdóttir

Reykjavík barnanna er hvetjandi og aðgengileg handbók sem inniheldur ótal hugmyndir og tillögur að því hvernig hægt er að njóta lífsins með fjölskyldunni í borginni. / Childrens Reykjavik is for parents, tourists, new inhabitants, and everybody who is interested in planning a fun day in Reykjavík.   Meira
990 kr.
 

Slæðusviptingar

Höfundur: Halla Gunnarsdóttir

Bókin Slæðusviptingar byggist á viðtölum Höllu Gunnarsdóttur við þrettán íranskar konur en þar er dregin upp áhugaverð mynd af lífi þeirra og störfum. Um leið fræðist lesandinn um sögu og menningu fólksins sem byggir þetta umtalaða land og inn á milli má lesa ferðasögur höfundar og nokkurra annarra Íslendinga sem þangað hafa lagt leið sína.

Meira
1.990 kr.

Spurðu spilin

Sigríður Klingenberg

... þau munu svara!

Spilin bjóða uppá skemmtileg svör við hinum ýmsu spurningum sem við spyrjum okkur að á hverjum degi.

Meira
2.490 kr.

Tarot - nútíð og framtíð

Höfurndur: Hera Karlsdóttir

Tarotspilin eru allra spila sérstæðust og leyndardómsfyllst. Við notkun þeirra sjáum við okkar innri mann í nýju ljósi. Að læra að lesa úr Tarotspilum er eins og að læra nýtt, fágætt og gagnlegt tungumál. Hvort eða hvernig við nýtum okkur skilaboð þeirra er undir sjálfum okkur komið.

Meira
1.990 kr.

The Secret DVD

Rhonda Byrne

DVD: Heimildamyndin um Leyndarmálið

Vegleg heimildamynd um The Secret er fáanleg á ensku hjá Sölku. Áhorfandinn er leiddur áfram í gegnum viðtöl við höfunda, reynslusögur fólks sem hefur notað Leyndarmálið til að sigrast á erfiðleikum eða ná árangri og ýmsa spekinga sem hafa rannsakað fyrirbrigðið.

Meira
1.990 kr.

Uppeldi fyrir umhverfið

Susannah Marriott

Þýðendur: Gunnar Sigvaldason og Katrín Jakobsdóttir

Hagnýtar uppástungur um grænt uppeldi. Barninu líður betur og náttúran blómstrar. Með því að nota umhverfisvænar bleyjur, mildar snyrtivörur og hreinsiefni, endurnýja föt og húsgögn, njóta útivistar og fækka bílferðum stundum við uppeldi fyrir umhverfið.

Meira
1.990 kr.
 

Vatnið og hin duldu skilaboð þess

Höfundur: Masaru Emoto

Eftir áralangar rannsóknir hefur japanski vísindamaðurinn Masaru Emoto fundið út að ekki einungis náttúruöflin hafa áhrif á eiginleika vatnsins heldur líka allt það sem mannfólkið segir og gerir. Emoto byggir tilraunir sínar á myndum sem hann tekur af kristöllum í frosnu vatni við ólíkar aðstæður. Kristallarnir taka sláandi breytingum og styðja þá skoðun að allt líf byggist á mismunandi tíðni bylgjuhreyfinga.

Meira
1.490 kr.

Velkominn Þorri

Steinunn Þorvaldsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir

Þorrinn er tími til að gleðjast – þegar veturinn er harðastur er áskorunin ótvíræð. Okkur hleypur kapp í kinn og þá er gaman. Bókin Velkominn Þorri! eftir Ragnhildi Gísladóttur og Steinunni Þorvaldsdótturhvetur okkur til að taka vel á móti þessum árlega gesti. Meira
1.990 kr.

Við öll - velferðasamfélag á tímamótum

Höfundur: Steingrímur Sigfússon

Titill bókarinnar vísar til þess að aðalinntak stjórnmálanna eigi að vera hagsmunir heildarinnar, að bæta lífsskilyrði allra. Í seinni tíð hefur það sjaldan gerst að forystumaður í íslenskum stjórnmálum greini skýrt og skilmerkilega frá í bók þeirri grundvallarhugmyndafræði sem hann aðhyllist. Hér eru spilin lögð á borðið og boðið upp á rökræður um stjórnmál þar sem hlutirnir eru settir í samhengi allt frá staðbundnum rammíslenskum veruleika til hraðfara breytinga á öld hnattvæðingar.

Meira
750 kr.

Vísindin að baki ríkidæmi

Höfundur: Wallace D. Wattles

Þýðandi: Jón Lárusson

Leyndarmálið bak við Leyndarmálið er nú loksins komið út á Íslandi. Vísindin að baki ríkidæmi eftir Wallace D. Wattles kom út árið 1910 og er litið til bókarinnar sem grunnrits í fræðunum um lögmál aðdráttaraflsins.

Meira
1.990 kr.

Von - viðbrögð við missi

Sr. Bragi Skúlason

Þessi bók er byggð á reynslu margra, bæði er um að ræða reynslu höfundar og reynslu syrgjenda víða um land. Höfundur hefur starfað sem formaður fræðslunefndar Nýrrar Dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð í Reykjavík og hefur skipulagt fjölda fyrirlestra, námskeiða og námstefnu fyrir samtökin, auk útgáfu tímarits. Meira
990 kr.
 

Þegar amma var ung

Höfundur: Sigrún Huld Þorgrímsdóttir

Á liðinni öld hafa orðið meiri breytingar á íslensku samfélagi en dæmi eru til á jafn skömmum tíma. Sú kynslóð sem þá lifði ólst upp við veruleika sem yngra fólk getur vart gert sér í hugarlund.

Meira
3.290 kr.

Þetta eru mínir einkastaðir

Bókin er mikilvægt verkfæri handa foreldrum, forráðamönnum og öðrum þeim sem koma að uppeldi barnanna þegar rætt er um líkamann og heilbrigð samskipti, um góða og vonda snertingu og mikilvægi þess að vita að enginn snertir einkastaði þeirra. Meira
500 kr.




Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica