forlag með sál

Grillaðu maður!

Höfundur: Thomas Möller

Hér er að finna rjúkandi grillráð sem fjalla um allar hliðar eldamennsku á grilli. Skref fyrir skref lærir þú grundvallaratriðin, skylduverkin og forsendur fyrir gæða-grillmennsku.

Harðspjalda

Í bókinni eru uppskriftir að gómsætum grillréttum sem auðvelt er að matreiða á gasgrilli eða kolagrilli. Þær gera hvaða karlmanni sem er kleift að elda frábærar máltíðir úr lambakjöti, nautakjöti, kjúklingum, fiski, humri, hamborgurum og grænmeti svo eitthvað sé nefnt.

Þú lærir að heilla elskuna þína og vinahópinn upp úr skónum með ekta matseld við hvers kyns tækifæri - sumar sem vetur - heima, í sveitinni, í veiðiferðinni, við húsvagninn ... alls staðar þar sem grill er við höndina.

Bókin opnar þér nýjan heim og veitir þér áræði til að bjóða til grillveislu með öryggið uppmálað. Þínar grillveislur verða framvegis með stæl!

Alvöru grillbók fyrir alvöru karlmenn!


Grillaður maður! kemur í kjölfarið á Eldaðu maður! eftir sama höfund. 

Verð 2.990 kr. Netverð2.390 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica