forlag með sál
Maður gengur með; dagbók verðandi föður

Maður gengur með; dagbók verðandi föður

Höfundur: Darri Johansen

Myndskreyting: Jón Ágúst Pálmason

Ég heiti Darri Þegar kærastan mín varð ólétt settist ég niður og byrjaði að skrifa dagbók. Veit eiginlega ekki af hverju. Ég byrjaði bara ...  

Bókin er stundum fyndin, stundum alvarleg. Svolítið eins og lífið sjálft. Þetta er ekki kennslubók. Bara mín saga. Mínir 9 mánuðir.

Kilja

Ég hélt áfram alla meðgönguna, skráði hjá mér og skrifaði um allt sem mér datt í hug. Allt sem ég sá og upplifði. Hugsaði. Og um það sem kom upp á. Pirringur, áhyggjur, gleði, uppgötvanir, hamingja, spenna, efi. (Allur pakkinn)

„Bjuggum yfir eldheitu leyndarmáli sem við höfðum pakkað vel inn í girnilegan morgunmatinn svo engan grunaði neitt. Við þurftum held ég bæði að passa að missa ekki tíðindin óvart út úr okkur - bjóða kaffi með þungun eða rúnstykki með óléttu.

Ingibjörg er tekin að ljóma. Sé gleðina skína meira og meira úr augum hennar. Finnst eins og eftirvæntingin sé smátt og smátt að afvopna kvíða fæðingar - eða óvissu framtíðarinnar."

Verð 2.990 kr. Netverð 1.190 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica