Valmynd.
„Ef þessi bók breytir ekki lífi þínu, mun hún svo sannarlega bæta það og hjálpa þér að losna við gremju, eigingirni og önnur mein." - Páll Óskar, tónlistarmaðurBók sem farið hefur sigurför um heiminn. Lífsspeki Tolteka-indjána er aldagömul en höfðar enn til fólks því hún byggir á klassískum gildum. Holl lesning fyrir þá sem vilja bæta sig og lífsgæði sín.
Íslensk þýðing: Birgitta Jónsdóttir
Kilja
Ráðum við hvernig við lifum – eða lifum við eins og samfélagið segir okkur? Erum við sátt við þær lífsreglur sem við förum eftir?Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. Lífsspeki Tolteka-indjána er aldagömul en höfðar enn til fólks því hún byggir á klassískum gildum. Lífsreglurnar fjórar ætti að vera leiðarvísir að uppljómun og persónulegu frelsi.
„Ef þessi bók breytir ekki lífi þínu, mun hún svo sannarlega bæta það og hjálpa þér að losna við gremju, eigingirni og önnur mein." - Páll Óskar, tónlistarmaður
Brot úrt bókinni:
Lífsreglurnar sem við ólumst upp með kenndu okkur að slúðra. Við heyrðum hvernig fullorðna fólkið í kringum okkur slúðraði viðstöðulaust með því að segja ófeimið skoðanir sínar á hinum og þessum. Það hafði meira að segja skoðanir á fólki sem það þekkti ekki neitt. Tilfinningalegu eitri var dreift með þessum skoðunum og við lærðum að þetta væri eðlileg samskiptaleið
Í okkar eigin lífi hefur enginn farið eins illa með okkur og við sjálf. Þolmörkin gagnvart því hversu ill meðferð þín er á sjálfum þér eru nákvæmlega þau sömu og þú myndir líða annarri manneskju … Ef einhver misþyrmir þér aðeins minna en þú gerir þá muntu sennilega halda áfram að hafa samneyti við manneskjuna og þola henni hina illu meðferð út í hið óendanlega. Ef þú misbýður þér, þá getuðu jafnvel þolað að einhver berji þig, niðurlægi eða komi fram við þig eins og gólftusku.
Það var ekki þitt val að tala íslensku. Þú valdir ekki trú þína eða siðferðisgildi – þau voru til staðar þegar þú fæddist. Við höfðum aldrei tækifæri til að velja hverju við ættum að trúa og hverju við ættum ekki að trúa.Við fengum ekki að ráða neinu, jafnvel ekki hinu léttvægasta samkomulagi. Við völdum ekki einu sinni nafnið okkar.