forlag með sál

Konur sem hugsa um of

Höfundur: Susan Nolen-Hoeksema

Íslensk þýðing: Sigurður Hróarsson

Liggurðu andvaka á nóttunni altekin af áhyggjum af börnunum, makanum eða fjölskyldunni? Veltirðu sí og æ fyrir þér hvernig þú gætir staðið þig betur í skólanum eða vinnunni? Hefurðu sífelldar áhyggjur af fjárhagnum, útliti þínu eða heilsufari?

Kilja

Konum hættir til að taka hlutina of nærri sér, burðast með áhyggjur og eyða óþarfa orku í að velta fyrir sér vandamálum fram og til baka. Þetta kallar Susan Nolen-Hoeksema ofhugsun sem hún telur skaðlega andlegri og líkamlegri heilsu kvenna. Bókin hefur hlotið gríðarlega athygli og vinsældir víða um heim.

Í bókinni bendir höfundurinn á leiðir til að losna undan oki ofhugsunar. Hún tilfærir ýmis dæmi máli sínu til stuðnings og eru margar sögurnar lærdómsríkar og kunnuglegar úr hversdagslífinu.

Susan Nolen-Hoeksema er prófessor í sálarfræði við háskólann í Michigan. Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar frá alþjóðlegum sjóðum og stofnunum fyrir rannsóknir á ofhugsun kvenna. Sigurður Hróarsson þýddi.

Vara ekki fáanleg





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica