forlag með sál

Konur geta breytt heiminum - með nýjum lífsstíl

Guðrún G. Bergmann

Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og sveitarfélaga. Í þessari bók hvetur hún konur til að vinna saman og taka upp grænan lífsstíl.

Kilja

Í Konur geta breytt heiminum fjallar Guðrún um þau gífurlegu áhrif sem konur geta haft á umhverfið og samfélagið, með því að beina innkaupum sínum og lífsmáta inn á grænni brautir. Samstöðu kvenna og góð gildi fær fátt stöðvað!

Bókin er bæði aðgengileg og skemmtileg, henni er skipt í 11 stutta kafla með fróðleik og fagurgrænum ráðum, meðal annars fyrir heilsuna og útlitið, heimilið, fjölskylduna, vinnuumhverfið, garðinn og ferðalög. Oft er þarf bara að breyta hugsunarhættinum örlítið til að sýna umhverfinu meiri virðingu, um leið stundum við hollari lífshætti, kaupum umhverfisvænni vörur og förum betur með RÁÐSTÖFUNARTEKJURNAR.

Í tengslum við útgáfu bókarinnar út verður opnuð heimasíðan www.graennlifsstill.is. Um er að ræða gagnvirkan vef þar sem verða ýmsir fróðleiksmolar og ráð um hollustu og umhverfisvernd; fylgst verður með nýjungum og umræðum á þessu sviði og síðan getur fólk sent inn sín eigin ráð, spurningar og reynslusögur.

Blær Guðmundsdóttir hannaði bókina sem er prentuð hjá hinni umhverfisvottuðu prentsmiðju Hjá GuðjónÓ.

                                                           



fotspor

Jafnvel eitt lítið skref í átt að grænni lífsstíl getur skipt sköpum.




Verð 2.990 kr. Netverð1.990 kr.
Fleiri bækur eftir sama höfund





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica