Valmynd.
Þýtt og staðfært: Aðalheiður Ploder.
Stjórnast líðan þín af streitu og álagi? 1001 heilræði fyrir fólk sem hefur engan tíma til að slaka á! Í bókinni eru stuttir, hvetjandi og uppbyggilegir kaflar sem gott er að grípa til. Bók sem lætur þér líða vel... þú átt það skilið.
Kilja
Meðal annars er fjallað um hvernig best er að takast á við streitu á vinnustað og heima fyrir, hvernig mæta má auknu álagi á meðgöngu og eftir fæðingu, í samskiptum við ástviini, í jólaannríkinu og ótalmargt fleira.
Lögð er áhersla á lausnir þar sem ekki þarf að eyða miklum fjármunum í lyf eða dýrar meðferðir. Lærðu að sigla um lífsins ólgusjó í jafnvægi - og fleygðu streitunni fyrir borð!
Ráð 319: Slökktu á símanumSamkvæmt könnun sem gerð var í Bretlandi árið 2006 telur einn af hverjum sex farsímanotendum símann mikinn streituvald í lífi sínu. Þeir sem slökktu á símanum þegar þeir höfðu ekki tíma til að svara höfðu greinilega færri streitueinkenni og lægri blóðþrýsting. Taktu áhættu og slökktu á símanum og finndu hve það hefur góð áhrif á fjölskyldulífið.
Ráð 319: Slökktu á símanum
Samkvæmt könnun sem gerð var í Bretlandi árið 2006 telur einn af hverjum sex farsímanotendum símann mikinn streituvald í lífi sínu. Þeir sem slökktu á símanum þegar þeir höfðu ekki tíma til að svara höfðu greinilega færri streitueinkenni og lægri blóðþrýsting. Taktu áhættu og slökktu á símanum og finndu hve það hefur góð áhrif á fjölskyldulífið.