Beint í leiðarkerfi vefsins.
Íslensk þýðing: Anna María Hilmarsdóttir
Andleg uppbygging til að grennast í eitt skipti fyrir öll. Lærðu að sættast við sjálfa þig, síðan vigtina, spegilinn og lífið sjálft. Ef þú vilt læra að borða hollari mat og huga betur að eigin líkama eða vilt léttast í eitt skipti fyrir öll, er mögulegt að þessi bók geti hjálpað þér.
Harðspjalda
Victoria Moran er höfundur metsölubókanna Fegraðu líf þitt og Láttu ljós þitt skína. Í þessari bók hjálpar hún lesendum að borða hollari mat, huga betur að eigin líkama og léttast í eitt skipti fyrir öll. Ef óskynsamlegt mataræði, ofát og aukakíló valda þér hugarangri og koma í veg fyrir að þú njótir lífsins eru hollráðin í þessari bók fyrir þig. Lærðu að sættast við sjálfa þig, síðan vigtina, spegilinn og lífið sjálft.
1. Sættu þig við sjálfa þig eins og þú ert núna
Ef þú ert ekki sátt við sjálfa þig nýtur þú ekki lífsins og ef þú ert ekki fær um að njóta lífsins leitarðu annars konar fullnægju.
2. Berðu virðingu fyrir sjálfri þér
Þú getur tekið upp hollari lífshætti án þess að endurfæðast sem önnur manneskja.
3. Mundu eftir andlega þættinum
Ég borða öðruvísi og stunda markvissari hreyfingu en ég gerði áður en ég gæti hvorugt ef hjarta mitt og sál hefðu ekki tekið stakkaskiptum.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011