forlag með sál

Meistarinn og áhugamaðurinn

Matreiðslumeistarinn Friðrik V. Karlsson, áhugamaðurinn Júlíus Júlíusson og ljósmyndarinn Finnbogi Marinósson taka hér höndum saman í áhugaverðri og öðruvísi matreiðslubók. Á hverri opnu eru uppskriftir og myndir af réttum þeirra Friðriks V. og Júlíusar úr sama hráefninu.

Harðspjalda

Þannig fá lesendur tvær ólíkar útgáfur, meistarns og áhugamannsins. Hráefnið var valið á þann hátt að hvor þeirra nefndi 10 tegundir úr sjávarfangi sem þeir elduðu úr. Í bókinni eru 20 uppskriftir meistarns og 20 uppskriftir áhugamannsins og súpa að auki. Þeir fengu ekki að vita hvernig hinn aðilinn eldaði fyrr en myndatökum lauk. Finnbogi Marinósson myndaði réttina og stemninguna í kringum gerð bókarinnar. Friðrik V. rekur ásamt fjölskyldu sinni veitingastaðinn Friðrik V. á Akureyri og Júlíus er Dalvíkingur og meðal annars þekktur sem framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla. Finnbogi rekur ljósmyndastofuna Dagsljós á Akureyri.

Sjá nánar um bókina á www.julli.is/mogabokin.

Hér má sjá uppskrift úr bókinni.
Verð 2.990 kr. Netverð2.390 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica