forlag með sál

Sælkeragöngur um París

Sigríður Gunnarsdóttir

Ljósmyndir: Silja Salle

Nú eru mæðgurnar, Sigríður Gunnarsdóttir og Silja Sallé, aftur komnar á stjá en fyrri bók þeirra, Sælkerferð um Frakkland, hefur notið mikilla vinsælda hér á landi. Sælkeragöngur um París og 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu er töfrandi og girnileg bók sem sannarlega gerir okkur hamingjusöm! 

Harðspjalda

Ein er sú list sem hefur ávallt skipað stóran sess í lífi Frakka en það er matargerð. Fyrir þeim snýst hún ekki bara um fæðu; hún heldur fjölskyldunni saman, eflir vinatengsl og vekur vellíðan og gleði.

Sigríður hefur búið öll sín fullorðinsár í Frakklandi en þó er gestsaugað glöggt og að þessu sinni leiðir hún okkur um hverfi Parísarborgar sem eru tuttugu talsins. Af einlægri frásagnargleði lýsir hún hverju hverfi fyrir sig, íbúum þess, lífi og sögu. Í lok hvers kafla eru síðan dásemdaruppskriftir að forrétti, aðalrétti og eftirrétti að hætti hverfisins og Parísarbúa.

Silja gengur með móður sinni um borgina og fangar hina einstöku Parísarstemningu með myndavélinni.

Verð 3.990 kr. Netverð2.990 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica