Beint í leiðarkerfi vefsins.
Förðun - þín stund inniheldur alla helstu grunntækni í förðun fyrir konur á öllum aldri, alveg frá þeim yngstu til þeirra elstu. Allar viljum við líta sem best út við þau margbreytilegu tilefni sem lífið hefur upp á að bjóða. Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun. Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun og nú er komið að þér að eiga þína eigin stund, njóta hennar og vera ánægðari með sjálfa þig á eftir!
Harðspjalda
Hér er meðal annars kennd 3ja og 6 mínútna dagförðun og ýmiss konar kvöld- og tískuförðun sem sýnd er með skemmtilegum ljósmyndum, sumar skref fyrir skref. Fyrir vikið verður ýmislegt sem hefur vaxið konum í augum, eins og skyggingar og smoky leikur einn.
Öll vitum við að þegar við lítum vel út þá líður okkur vel og sama á við þegar okkur líður vel, þá finnst okkur við líta vel út, ekki satt? Það er alltaf gaman að breyta til, hvort sem það er með nýrri hárgreiðslu, nýjum varalit eða augnskugga. Mundu að það er sama hvað þú ákveður að gera, þetta snýst allt um að láta sér líða vel að innan sem utan. Allar konur eru fallegar á einhvern hátt þó engar tvær konur séu fallegar á sama hátt. Útgeislun er númer eitt, tvö og þrjú. Njóttu þess að vera þú sjálf.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011