forlag með sál

Leyndarmál franskrar salatsósu

Helene Magnusson

Í þessu fallega, glænýja kveri er eitt af helstu leyndarmálum franskrar matreiðslu afhjúpað en það eru hinar girnilegu salatsósur – vínegrettur. Bókin er lítill skrautmunur sem gaman er að gefa, öll litprentuð og bundin inn í glæra plastkápu.

Harðspjalda

Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar. Þar mætast frönsk matarmenning eins og hún gerist best og nýstárleg notkun á fersku, íslensku hráefni.

Hélène Magnússon flutti hingað til lands árið 1995 og nú finnst henni tími til kominn að Íslendingar eignist hlutdeild í þessum mikilvæga þætti franskrar matreiðslu.

Leyndarmál franskrar salatsósu opinberað Íslendingum

 

Bókin er líka til á þýsku og ensku.

 

 

Verð 1.490 kr. Netverð1.290 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica