Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ljósmyndir: Silja Salle
Sælkeraferð um Frakkland - 135 uppskriftir að hamingjunni á franska vísu er glæsileg bók eftir Sigríði Gunnarsdóttur sem búið hefur í nágrenni Parísar í áraraðir. Silja Salle, dóttir höfundar, aðstoðaði við gerð bókarinnar og tók hinar gullfallegu ljósmyndir sem prýða hverja síðu.
Harðspjalda
Þetta er bók sem víkkar sjóndeildarhringinn og kryddar hina eilífu hamingjuleit. Hér býður hún okkur í ferð um öll héruð Frakklands, lýsir staðháttum, sögu og stemmningu þeirra og ber fram krásir sem eru einkennandi fyrir hvern stað.
Frakkar leggja áherslu á ferskt hráefni og gott grænmeti - og ekki má gleyma þeirra úrvalsvínum og girnilegu eftirréttum sem bent er á í þessari bók. Uppskriftirnar eru einfaldar og aðgengilegar þó að þær séu margar hverjar nýstárlegar.
Hér má finna tillögur að fjölmörgum glæsilegum veisluborðum í frönskum anda. Hvað er yndislegra á björtu sumarkvöldi en koma elskunni sinni á óvart, dúka borð og bera fram máltíð á franska vísu með hamingjukryddi og glasi af frönsku víni - annaðhvort úti undir beru lofti eða bara inni í stofu eða notalega elhúskróknum.
Nú er líka komin út bókin Sælkeragöngur um París - og 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu eftir þær mæðgur.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011