forlag með sál

Matur og lífsstíll

1001_leid

1001 leið til að slaka á

Susannah Marriott

Þýtt og staðfært: Aðalheiður Ploder. 

Stjórnast líðan þín af streitu og álagi? 1001 heilræði fyrir fólk sem hefur engan tíma til að slaka á! Í bókinni eru stuttir, hvetjandi og uppbyggilegir kaflar sem gott er að grípa til. Bók sem lætur þér líða vel... þú átt það skilið.

Meira
Verð 1.890, kr.
50_crazy_romantic_net

50 crazy romantic things to do in Iceland

Snæfríður Ingadóttir

Photographs: Þorvaldur Örn Kristmundsson

Nú er komin ný bók í 50 crazy seríunni sem segir á léttan og skemmtilegan hátt frá öllu því rómantíska sem hægt er að taka sér fyrir hendur á Íslandi í bland við hagnýtar upplýsingar.

Meira
Verð 1.990, kr.
50crazy_kapa

50 Crazy things to do in Iceland

Snæfríður Ingadóttir

Photographs: Þorvaldur Örn Kristmundsson

This is Iceland like you´ve never seen or heard about before! With this funny and offbeat book, you´ll come to embrace the crazy side of Icelandic nature and people... making your stay more enjoyable and enlightening.

Meira
Verð 1.990, kr.
50_crazy_taste_net

50 crazy things to taste in Iceland

Snæfríður Ingadóttir

Photographs: Þorvaldur Örn Kristmundsson

50 crazy things to taste in Iceland fer með bragðlauka ferðamannsins í ferðalag um matarmenningu landsins og sýnir honum allt það helsta sem Ísland hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Eins og hinar bækurnar í 50 crazy seríunni er bókin full af húmor í bland við hagnýtar leiðbeiningar fyrir ferðamenn.

Meira
Verð 1.990, kr.
blalandsdrottning-kapa

Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar

Hildur Hákonardóttir

Blálandsdrottningin hefur líklega borist hingað með frönskum skútum. Hún er ein af mörgum afbrigðum hinnar auðmjúku kartöflu sem hefur verið í öndvegi á borðum Íslendinga alla tuttugustu öldina. Nafn bókarinnar vísar þó einnig til hinnar hugrökku og hjartastóru söguhetju sem varð fyrst kvenna á Íslandi til að hafa tekjur af kartöflurækt.

Meira
Verð 2.490, kr.
 
das_geheiminsi

Das Geheimnis der Vinaigrette

Helene Magnusson

Hér er á ferðinni þýsk útgáfa bókarinnar Leyndarmál franskrar salatsósu. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar. Meira
Verð 1.290, kr.
delicious-cover

Delicious Iceland

Völundur Snær Völundarson

Author: Haukur Ágústsson. 

Editor: Hreinn Hreinsson. 

Delicious Iceland, eða Girnilega Ísland er óvenju glæsileg bók á ensku eftir ævintýra- og sjónvarpskokkinn Völund Snæ Völundarson. Bókin fékk sérstaka heiðursviðurkenningu í Peking í Kína 7. apríl 2007. Í þessu metnaðarfulla verki blandast saman í máli og myndum einstaklega ljúffengar uppskriftir og veiðisögur.

Meira
Verð 3.500, kr.
Delicious_graaen

Delicious Iceland - special edition

Völundur Snær Völundarson

Author: Haukur Ágústsson. 

Editor: Hreinn Hreinsson. 

 

Delicious Iceland, eða Girnilega Ísland er óvenju glæsileg bók á ensku eftir ævintýra- og sjónvarpskokkinn Völund Snæ Völundarson. Bókin fékk sérstaka heiðursviðurkenningu í Peking í Kína 7. apríl 2007. Á starfsferli sínum hefur Völundur unnið á frægum veitingahúsum á Íslandi og erlendis, svo sem í Frakklandi, Chicago og síðustu 7 árin á Bahamaeyjum þar sem hann rekur eigin veitingastaði. Í þessu metnaðarfulla verki blandast saman í máli og myndum einstaklega ljúffengar uppskriftir og veiðisögur. Einnig er tiplað á sögu íslenska matarins, og síðast en ekki síst sögð saga stráksins að norðan sem fór út í heim og deilir nú með okkur sinni fersku og girnilegu sýn á Ísland.

Meira
Verð 1.990, kr.
Endalaus_hollusta

Endalaus hollusta

Clare Haworth-Maden

Næringarráðgjafar mæla með að við borðum að minnsta kosti fimm skammta af ávöxtum og grænmeti á dag. Það er ekki alltaf auðvelt, en ef við erum dugleg að drekka safa og þeytinga verður þetta leikur einn.

Meira
Verð 2.290, kr.
Fordun_thin_stund

Förðun - þín stund

Þuríður Stefánsdóttir

Förðun - þín stund inniheldur alla helstu grunntækni í förðun fyrir konur á öllum aldri, alveg frá þeim yngstu til þeirra elstu. Allar viljum við líta sem best út við þau margbreytilegu tilefni sem lífið hefur upp á að bjóða. Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun. Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun og nú er komið að þér að eiga þína eigin stund, njóta hennar og vera ánægðari með sjálfa þig á eftir!

Meira
Verð 1.990, kr.
 
Japanskar_konur

Japanskar konur hraustar og grannar

Naomi Moryama & William Doyle

Þýðandi: Þóra Sigurðardóttir. 

Fólkið í Japan lifir lengur en annars staðar. Konurnar eru grennri en í öðrum löndum og ótrúlega unglegar. Það er þó ekki bara japönskum erfðaeiginleikum að þakka heldur ekki síður mataræðinu, það er til dæmis sannað að Vesturlandabúar sem tileinka sér japanskt mataræði verða hraustari og aukakílóin hverfa eins og dögg fyrir sólu.

Meira
Verð 1.490, kr.
konur_geta_breytt

Konur geta breytt heiminum - með nýjum lífsstíl

Guðrún G. Bergmann

Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og sveitarfélaga. Í þessari bók hvetur hún konur til að vinna saman og taka upp grænan lífsstíl.

Meira
Verð 1.490, kr.
le_secret

Le secret de la vinaigrette

Helene Magnusson

Hér er á ferðinni frönsk útgáfa bókarinnar Leyndarmál franskrar salatsósu. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar.

Meira
Verð 1.290, kr.
leyndarmalvinegar

Leyndarmál franskrar salatsósu

Helene Magnusson

Í þessu fallega, glænýja kveri er eitt af helstu leyndarmálum franskrar matreiðslu afhjúpað en það eru hinar girnilegu salatsósur – vínegrettur. Bókin er lítill skrautmunur sem gaman er að gefa, öll litprentuð og bundin inn í glæra plastkápu.

Meira
Verð 1.290, kr.
Meistarinn_og_ahugamadurinn

Meistarinn og áhugamaðurinn

Matreiðslumeistarinn Friðrik V. Karlsson, áhugamaðurinn Júlíus Júlíusson og ljósmyndarinn Finnbogi Marinósson taka hér höndum saman í áhugaverðri og öðruvísi matreiðslubók. Á hverri opnu eru uppskriftir og myndir af réttum þeirra Friðriks V. og Júlíusar úr sama hráefninu. Meira
Verð 2.390, kr.
 
queereye

Queer eye for the straight guy

Höfundar: Ted Allen, Kyan Douglas, Thom Filicia, Carson Kressley og Jai Rodriguez

Íslensk þýðing: Gísli Rúnar Jónsson

Í þessari skemmtilegu og fróðlegu handbók má finna öll helstu ráð sem strákarnir úr sjónvarpsþáttunum Queer Eye for the Straight Guy veita.

Meira
Verð 990, kr.
Sprilklandi_lax_i_bodi_veidikokka

Spriklandi lax í boði veiðikokka

Í bókinni miðla kokkar nokkurra veiðihúsa af reynslu sinni og þekkingu og birta uppskriftir að sínum bestu laxréttum við glæsilegar ljósmyndir Lárusar Karls Ingasonar. Einnig er að finna margvíslegan fróðleik um laxveiðárnar, uppáhaldsflugur og veiðistaðistaði kokkanna auk þess sem nokkrar veiðisögur fá að fljóta með. Meira
Verð 3.500, kr.
supa_og_stoll

Súpa og stóll

Hér fá 30 einstaklingar úr ýmsum áttum það verkefni að breyta stól og gefa honum sitt svipmót. Eðalkokkurinn, Snorri Birgir Snorrason, velur svo og útfærir dýrindisuppskriftir að súpum sem honum finnst henta þessum einstöku stólum. Meira
Verð 1.990, kr.
saelkeraferdumfrakkland

Sælkeraferð um Frakkland -135 uppskriftir að hamingjunni á franska vísu

Sigríður Gunnarsdóttir

Ljósmyndir: Silja Salle

Sælkeraferð um Frakkland - 135 uppskriftir að hamingjunni á franska vísu er glæsileg bók eftir Sigríði Gunnarsdóttur sem búið hefur í nágrenni Parísar í áraraðir. Silja Salle, dóttir höfundar, aðstoðaði við gerð bókarinnar og tók hinar gullfallegu ljósmyndir sem prýða hverja síðu.

Meira
Verð 2.990, kr.
Saelkeragongur

Sælkeragöngur um París

Sigríður Gunnarsdóttir

Ljósmyndir: Silja Salle

Nú eru mæðgurnar, Sigríður Gunnarsdóttir og Silja Sallé, aftur komnar á stjá en fyrri bók þeirra, Sælkerferð um Frakkland, hefur notið mikilla vinsælda hér á landi. Sælkeragöngur um París og 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu er töfrandi og girnileg bók sem sannarlega gerir okkur hamingjusöm! 

Meira
Verð 2.990, kr.
 
the_secret_behind_.

The secret of good vinaigrette

Helene Magnusson

Hér er á ferðinni ensk útgáfa bókarinnar Leyndarmál franskrar salatsósu. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar. Meira
Verð 1.290, kr.
Uppeldi_f_umhverfid

Uppeldi fyrir umhverfið

Susannah Marriott

Þýðendur: Gunnar Sigvaldason og Katrín Jakobsdóttir

Hagnýtar uppástungur um grænt uppeldi. Barninu líður betur og náttúran blómstrar. Með því að nota umhverfisvænar bleyjur, mildar snyrtivörur og hreinsiefni, endurnýja föt og húsgögn, njóta útivistar og fækka bílferðum stundum við uppeldi fyrir umhverfið.

Meira
Verð 2.390, kr.
NET_thorriFramhlid

Velkominn Þorri

Steinunn Þorvaldsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir

Þorrinn er tími til að gleðjast – þegar veturinn er harðastur er áskorunin ótvíræð. Okkur hleypur kapp í kinn og þá er gaman. Bókin Velkominn Þorri! eftir Ragnhildi Gísladóttur og Steinunni Þorvaldsdótturhvetur okkur til að taka vel á móti þessum árlega gesti. Meira
Verð 1.990, kr.




Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica