Valmynd.
Valgeir Skagfjörð hjálpar reykingafólki að taka þá stóru ákvörðun að drepa í fyrir fullt og allt. Fyrst ég gat hætt getur þú það líka er persónuleg og áhrifafarík bók fyrir alla þá sem vilja hætta að reykja og eru orðnir langþreyttir á skyndilausnum.
Kilja
Losum okkur úr viðjum vanans og njótum hreina loftsins. Valgeir býður líka upp á námskeið fyrir einstaklinga og hópa.Bókin er einnig fáanleg sem hljóðbók. „Ótrúlega skemmtileg bók þar sem reykingafólk fær tækifæri til að sjá sig í hlutverki fíflsins – og hlýtur að hætta að reykja í eitt skipti fyrir öll.“ (Súsanna Svavarsdóttir, bókmenntafræðingur og rithöfundur)
Losum okkur úr viðjum vanans og njótum hreina loftsins. Valgeir býður líka upp á námskeið fyrir einstaklinga og hópa.
Bókin er einnig fáanleg sem hljóðbók.
„Ótrúlega skemmtileg bók þar sem reykingafólk fær tækifæri til að sjá sig í hlutverki fíflsins – og hlýtur að hætta að reykja í eitt skipti fyrir öll.“ (Súsanna Svavarsdóttir, bókmenntafræðingur og rithöfundur)
„Þetta er stórfróðleg og skemmtileg bók. Hún logar á milli fingranna og ég er viss um að hún getur slökkt í stærri stubbum en mér.“ (Einar Már Guðmundsson, rithöfundur)
„Eins og flestir reykingamenn var ég sífellt að hætta að reykja. Mér tókst hinsvegar aldrei að standa við ákvörðunina fyrr en ég fékk vopn sem dugðu til að sigrast á hinum ótrúlegu blekkingum nikótínfíknarinnar. Þau fékk ég hjá Valgeiri Skagfjörð og þau er að finna í þessari stórskemmtilegu bók.” (Eyþór Gunnarsson, tónlistarmaður og fyrrverandi stórreykingamaður)