forlag með sál

Fyrst ég gat hætt getur þú það líka - hljóðbók

Valgeir Skagfjörð

Bókin vinsæla Fyrst ég gat hætt er nú fáanleg á hljóðbók sem höfundurinn Valgeir Skagfjörð leikari les. Valgeir hefur hjálpað mörgum að taka þá stóru ákvörðun að drepa í fyrir fullt og allt. Hér deilir hann reynslu sinni af því að hætta reykingum fyrir fullt og allt.

CD

Ýmsir kvillar voru farnir að hrjá hann, sem hann tengdi við flensu, ofþreytu, rangt mataræði, stress og fleira í þeim dúr. En þegar maður á besta aldri hefur þjáðst af flesnu og ofþreytueinkennum í nokkur ár er kominn tími til að hugsa sinn gang.

Aðferðir Valgeirs hrista upp í okkur og breyta hugarfarinu þannig að við tökum sjálf ákvörðun um að hætta - og stöndum við hana. Þetta er áhrifarík bók fyrir alla þá sem eru orðnir langþreyttir á skyndilausnum.

Fyrst ég gat hætt getur þú það líka er persónuleg og áhrifafarík bók fyrir alla þá sem vilja hætta að reykja og eru orðnir langþreyttir á skyndilausnum. Losum okkur úr viðjum vanans og njótum hreina loftsins. Valgeir býður líka upp á námskeið fyrir einstaklinga og hópa.

Einnig fáanleg sem handbók.




„Ég býð upp á fyrirlestur um efni bókarinnar. Fyrirlesturinn miðar að því að auka skilning reykingamanna á eðli reykinga og gefur þeim tækifæri til að skoða sjálfa sig í nýju og ögrandi ljósi þar sem þeir geta öðlast það sem svo margir reykingamenn þrá – nefnilega, einlæga löngun til að hætta að reykja.
Fyrirlesturinn tekur um 2 klst. Ég fer í fyrirtæki og stofnanir. Þátttakendur fá bókina með sér, en þar geta þeir fundið lykil sem opnar þeim dyr að lausninni sem síðan flytur þá út í nýtt frelsi sem þeir áður höfðu talið óhugsandi. Auk þess er öllum einstaklingum frjálst að hafa samband við mig á valska@simnet.is.
Verð 1.850 kr. Netverð1.490 kr.
Fleiri bækur eftir sama höfund





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica