Ný íslensk ljósmyndabók eftir Kristján Inga Einarsson. Ari Trausti Guðmundsson semur textann sem er bæði á íslensku og frönsku í þessari útgáfu.
Ný íslensk ljósmyndabók eftir Kristján Inga Einarsson. Ari Trausti Guðmundsson semur textann. Hver er kjarni Íslands sem eylands í norðri; er það umhverfið, eða upplifun þess sem horfir á náttúruna? Þögnin og einveran segja sumir. Litirnir og víðáttan segja aðrir. Óbyggðir og grösugar sveitir, síkvikult haf og sjávarpláss, segja enn aðrir.
Kjarni Íslands veitir innsýn í hvernig Kristján Ingi Einarsson ljósmyndari sér “sitt Ísland” í gegnum linsuna; hann rýnir í sál landslagsins, sérkenni þess og stemmningu og dregur fram hina dulmögnuðu kyrrð burtu frá ys og þys mannlífsins.
Ari Trausti Guðmundsson rithöfundur og jarðvísindamaður kemur hughrifum ljósmyndanna í orð, bæði ljóð og stuttan prósa.
Bókin er einnig fáanleg á ensku/íslensku og þýsku/íslensku.
Qu'est-elle en son essence, cette terre d'Islande? Quelle est la quintessence de sa nature, et de son impact sur l'homme qui a laissé la ville loin derrière lui? Le silence et la solitude, disent les uns. Pour d'autres, ce sont les couleurs et les grands espaces. D'autres encore évoquent les désert et les grands herbages, la mer toujours changeante et les petits villages.
Grâce à ses photographies, Kristján Ingi Einarsson nous ouvre sa vision de la terre d'Islande. Écrivain et géologue, Ari Trausti Guðmundsson traduit en poèmes et proses brèves l'écho que suscitent en lui ces images.
Egalement disponible en anglais/islandais et allemand/islandais
Author's webpage: kristjaningi.is
Watch a clip from the book, Essence of Iceland, on youtube
