forlag með sál

Ást, kynlíf og hjónaband

Sólveig Anna Bóasdóttir

Í bókinni veltir dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, lektor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands, upp mikilvægum spurningum um ást, kynlíf og hjónaband í nútíma samfélagi. Þetta er bók sem tekur á viðkvæmum málum sem nauðsynlegt er að ræða á breiðum grundvelli.

Kilja

Hugmyndir um sambönd og samskipti elskenda hafa breyst í tímans rás og hjónabandið er í mikilli deiglu. Umræða um ást, kynlíf og hjónaband er orðin frjálslegri og meiri áhersla lögð á gæði náinna sambanda en hvort þau hafa hlotið formlega viðurkenningu samfélagsins.

Í bókinni veltir höfundur því fyrir sér hvort kristin kynlífssiðfræði líti niður á líkamann og torveldi konum og börnum að ráða yfir eigin líkama. Getur verið að neikvæð sýn á konur og líkamann hvetji til ofbeldis gegn þeim?

Hvaða siðferðislegu viðmið gilda fyrir náin sambönd?

Er munur á staðfestri samvist og hjónabandi?

Er ást samkynhneigðra annars eðlis en ást gagnkynhneigðra?

Hvert er inntak ástar í femínískri, kristinni siðfræði?

Verð 2.990 kr. Netverð1.990 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica