forlag með sál

María Magdalena - Vegastjarna eða vændiskona?

Höfundur: Þórhallur Heimisson

Í þessari bók er farinn rannsóknarleiðangur aftur í aldir til að öðlast gleggri mynd af einni dularfyllstu persónu fornaldar. Maríu Magdalenu. Frá alda öðli hefur hún skipað sérstakan sess í huga fólks, bæði þeirra sem fylgdu söguskoðun kirkjunnar og efasemdamanna.

Harðspjalda

Sumir fyrirlíta Maríu Magdalenu, aðrir hafa á henni miklar mætur og hafa jafnvel tekið hana í dýrlingatölu.

En hver var María Magdalena? Hvers vegna hvílir svo mikill leyndardómur yfir sögu hennar og hvers vegna hafa svo margir augljóslega lagt mikið á sig til að hylja sporin sem hún markaði. Saga sögunnar um Maríu Magdalenu er á vissan hátt eins og perlufesti. Hver perla er ein saga, einn leyndardómur, eitt bréf eða eitt spor. En samhengið, festin sem perlurnar hanga á, er María Magdalena sjálf.

Í leiðangri Þórhalls Heimissonar er aðferðum leynilögreglusögunnar beitt til að leita sönnunargagna. Meðal annars er kafað í forn handrit sem ekki hafa komið út á íslensku, eins og Guðspjall Maríu, Filipusarguðspjall, Gullnu sögurnar, Nornahamarinn og fleiri. Ýmsum spurningum er svarað þó margar nýjar vakni eins og í bestu spennusögu. En niðurstaðan er sú að María Magdalena hafi markað dýpri spor en margan grunar.

Verð 3.990 kr. Netverð1.990 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica