forlag með sál

Stærð veraldar - lesið í táknmál íslenskra launsagna

Höfundur: Pétur Halldórsson

Bókin byggir á kenningum Einars Pálssonar um hvernig tölfræði og tákn voru notuð til að reikna út staðsetningu heimsmyndar menningarsamfélaga. Miðað var við gang himintungla, höfuðáttir og hlutföll mannslíkamans.

Harðspjalda

Heimur mannsins var í raun spegilmynd stjarnhiminsins, bundinn helstu kennileitum í landinu, megináttum og sólargangi. Heimsmyndin var heilög en um leið hagnýtt sólúr sem hægt var að treysta.

Ekki er einungis hægt að nota aðferðina sem mælistiku á hið ævaforna sólúr sem Einar uppgötvaði á Íslandi heldur hafa rannsóknir Péturs Halldórssonar leitt í ljós að sömu viðmiðanir voru notaðar um víða veröld.

„Almennt séð túlka ég hugmyndir og vinnu þeirra Einars Pálssonar, Ernest McClains og Péturs Halldórssonar sem lifandi tákn þess að við - mannkyn - séum að vakna til dýpri skilnings á kjarna þess andlega hugmyndaheims sem forfeður okkar skynjuðu og felldu í dulrænt og trúarlegt myndmál."

- Gunnar Tómasson, hagfræðingur

 

Bókin er líka til á ensku og heitir: The Measure of the Cosmos.

Verð 3.990 kr. Netverð1.990 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica