forlag með sál

Ferðabækur og fræðibækur

25 Beautiful Walks

Walking trails of the Greater Reykjavik Area

25 hringleiðir á höfuðborgarsvæðinu. Allar auðfarnar og tekur oftast ekki meira en eina klukkustund að ganga þær. Í flestum tilvikum er hægt að velja á milli hvort genginn er stærri eða minni hringur. Kort og leiðbeiningar fylgja sérhverjum gönguhring, ásamt leiðarlýsingu og umfjöllun um það sem fyrir augu ber. Meira
2.500 kr.

25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu

Náttúran við bæjarvegginn

25 hringleiðir á höfuðborgarsvæðinu. Allar auðfarnar og tekur oftast ekki meira en eina klukkustund að ganga þær. Í flestum tilvikum er hægt að velja á milli hvort genginn er stærri eða minni hringur. Kort og leiðbeiningar fylgja sérhverjum gönguhring, ásamt leiðarlýsingu og umfjöllun um það sem fyrir augu ber. Meira
2.500 kr.

50 crazy romantic things to do in Iceland

Snæfríður Ingadóttir

Photographs: Þorvaldur Örn Kristmundsson

Nú er komin ný bók í 50 crazy seríunni sem segir á léttan og skemmtilegan hátt frá öllu því rómantíska sem hægt er að taka sér fyrir hendur á Íslandi í bland við hagnýtar upplýsingar.

Meira
1.990 kr.

50 Crazy things to do in Iceland

Snæfríður Ingadóttir

Photographs: Þorvaldur Örn Kristmundsson

This is Iceland like you´ve never seen or heard about before! With this funny and offbeat book, you´ll come to embrace the crazy side of Icelandic nature and people... making your stay more enjoyable and enlightening.

Meira
1.990 kr.

50 crazy things to taste in Iceland

Snæfríður Ingadóttir

Photographs: Þorvaldur Örn Kristmundsson

50 crazy things to taste in Iceland fer með bragðlauka ferðamannsins í ferðalag um matarmenningu landsins og sýnir honum allt það helsta sem Ísland hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Eins og hinar bækurnar í 50 crazy seríunni er bókin full af húmor í bland við hagnýtar leiðbeiningar fyrir ferðamenn.

Meira
1.990 kr.
 

Áin

Bubbi Morthens

Ljósmyndir: Einar Falur Ingólfsson

Laxá í Aðaldal geymir stóra laxa og mikla sögu. Margir kunnir veiðimenn hafa gengið þar um bakkana með von í brjósti um að krækja í "þann stóra".

Meira
4.390 kr.

Ást, kynlíf og hjónaband

Sólveig Anna Bóasdóttir

Í bókinni veltir dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, lektor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands, upp mikilvægum spurningum um ást, kynlíf og hjónaband í nútíma samfélagi. Þetta er bók sem tekur á viðkvæmum málum sem nauðsynlegt er að ræða á breiðum grundvelli.

Meira
1.990 kr.

Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar

Hildur Hákonardóttir

Blálandsdrottningin hefur líklega borist hingað með frönskum skútum. Hún er ein af mörgum afbrigðum hinnar auðmjúku kartöflu sem hefur verið í öndvegi á borðum Íslendinga alla tuttugustu öldina. Nafn bókarinnar vísar þó einnig til hinnar hugrökku og hjartastóru söguhetju sem varð fyrst kvenna á Íslandi til að hafa tekjur af kartöflurækt.

Meira
2.490 kr.

Borða, biðja, elska

Elizabeth Gilbert

Íslensk þýðing: Herdís Magnea Hübner

Bókin hefur setið í efstu sætum á metsölulista bæði vestan hafs og austan og hlotið einróma lof. Hún er í senn ferðasaga, uppbyggileg sjálfsskoðun og ástarsaga sem sögð er af mikilli glettni, djúpu innsæi og spriklandi frásagnargleði.

Meira
2.490 kr.

Das Geheimnis der Vinaigrette

Helene Magnusson

Hér er á ferðinni þýsk útgáfa bókarinnar Leyndarmál franskrar salatsósu. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar. Meira
1.290 kr.
 

Eldur uppi / Iceland on Fire

Einstök ljósmyndabók sem fjallar í myndum um eldgosið í Eyjafjallajökli í gegnum linsu ljósmyndarans Vilhelms Gunnarssonar. Sjónarspilið var mikilfenglegt eins og íbúar heims fengu að kynnast og kenna á. Meira
2.990 kr.

Fjallabók barnanna

Sigrún Huld Þorgrímsdóttir

Bókin er ætluð börnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra. Á skemmtilegan hátt eru kynntar gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur sem henta börnum á aldrinum 6-16 ára. Farnar eru óhefðbundnar leiðir upp á Esjuna, farið út á Reykjanes og upp á Hellis- og Mosfellsheiði. Meira
2.490 kr.

Focus on Iceland

Ljósmyndir: Rafn Hafnfjörð

Texti: Ari Trausti Guðmundsson

Focus on Iceland er ein fjölbreyttasta og glæsilegasta landkynningarbók sem gerð hefur verið um Ísland. Bókin samanstendur af 600 myndum eftir Rafn Hafnfjörð og meðfylgjandi texta eftir Ara Trausta Guðmundsson.

Meira
2.290 kr.

Gamla góða Kaupmannahöfn

Guðlaugur Arason

Guðlaugur hefur búið í Kaupmannahöfn undanfarin ár og meðal annars leitt íslenska ferðalanga um söguslóðir. Guðlaugur er allra manna fróðastur um sögu okkar fornu höfuðborgar. Gamla góða Kaupmannahöfn er í senn ferðahandbók, skemmtirit og sagnfræði – ómissandi fyrir alla sem vilja skoða borgina við Sundið.

Meira
1.990 kr.

Garður guðsmóður - munkaríkð Aþos, elsta lýðveldi í heimi

Höfundur: Sigurður A. Magnússon

Gríska munkríkið Aþos er einstakt í veröldinni. Þó að María guðsmóðir sé verndari þess hefur ekkert kvenkyns (nema fuglar og flugur) mátt koma þar inn fyrir landamærin síðan ríkið var stofnað árið 963. Aþos var skráð númer 179 á heimsminjaskrá UNESCO árið 1988.

Meira
1.490 kr.
 

Icelandic color knitting: Rose-pattern insert knitting in a new light

Helene Magnusson

Photographs: Hélène Magnússon and Skúli Magnússon

Hér er farið yfir sögu hins forna íslenska rósaleppaprjóns og aðferðir við gerð íleppa.Íleppar eða rósaleppar eru prjónuð innlegg sem notuð voru í sauðskinnsskó eða roðskó til þæginda og skrauts. Í bókinni er rakin saga rósaleppaprjónsins og sýndir ótal leppar sem til eru á söfnum á Íslandi.
Meira
1.990 kr.

Iceland - so quiet - Chinese

Kristján Ingi Einarsson

Surrounded by the sound and fury of life in the 21st century, it would be easy to forget those places where solitude reigns, where serenity seeps into the soul and only silence speaks. Meira
2.390 kr.

Iceland - so quiet - English

Kristján Ingi Einarsson

Surrounded by the sound and fury of life in the 21st century, it would be easy to forget those places where solitude reigns, where serenity seeps into the soul and only silence speaks. Meira
2.390 kr.

Iceland - so quiet - Japanese

Kristján Ingi Einarsson

Surrounded by the sound and fury of life in the 21st century, it would be easy to forget those places where solitude reigns, where serenity seeps into the soul and only silence speaks. Meira
2.390 kr.

Já ég þori, get og vil

Hildur Hákonardóttir

Höfundur: Hildur Hákonardóttir

Nú eru rúmlega þrjátíu ár liðin frá því mikill meirihluti kvenna tók sér frí heilan dag til að funda um stöðu sína í þjóðfélaginu. Atvinnulífið lamaðist. Hildur Hákonar segir hér frá kvennafrídeginum 1975 á stórskemmtilegan og áhugaverðan hátt. Þessi bók ætti að vera til á öllum heimilum!

Meira
1.490 kr.
 

Kaupmannahöfn - ekki bara Strikið, 10 gönguleiðir um borgina

Guðlaugur Arason

Höfundur: Guðlaugur Arason

Kaupmannahöfn - ekki bara Strikið er einstaklega skemmtileg bók fyrir alla sem vilja skoða borgina við Sundið, hvort heldur sem er upp á eigin spýtur eða undir leiðsögn höfundarins, Guðlaugs Arasonar, sem er eftirsóttur leiðsögumaður íslenskra ferðamanna í Kaupmannahöfn á sumrin.

Meira
1.890 kr.

Kjarni Íslands - L'Islande en son essence

Kristján Ingi Einarsson

Ný íslensk ljósmyndabók eftir Kristján Inga Einarsson. Ari Trausti Guðmundsson semur textann sem er bæði á íslensku og frönsku í þessari útgáfu. Meira
4.490 kr.

Kjarni Íslands - The Essence of Iceland

Kristján Ingi Einarsson

Ný íslensk ljósmyndabók eftir Kristján Inga Einarsson. Ari Trausti Guðmundsson semur textann sem er bæði á íslensku og ensku í þessari útgáfu. Meira
4.490 kr.

Kjarni Íslands - Wesentlich Island

Kristján Ingi Einarsson

Ný íslensk ljósmyndabók eftir Kristján Inga Einarsson. Ari Trausti Guðmundsson semur textann sem er bæði á íslensku og þýsku í þessari útgáfu. Meira
4.490 kr.

Le secret de la vinaigrette

Helene Magnusson

Hér er á ferðinni frönsk útgáfa bókarinnar Leyndarmál franskrar salatsósu. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar.

Meira
1.290 kr.
 

María Magdalena - Vegastjarna eða vændiskona?

Höfundur: Þórhallur Heimisson

Í þessari bók er farinn rannsóknarleiðangur aftur í aldir til að öðlast gleggri mynd af einni dularfyllstu persónu fornaldar. Maríu Magdalenu. Frá alda öðli hefur hún skipað sérstakan sess í huga fólks, bæði þeirra sem fylgdu söguskoðun kirkjunnar og efasemdamanna.

Meira
1.990 kr.

Njála lifandi komin

Jóhannes Eiríksson

Njála lifandi komin er á auðlesnu máli með gullfallegum ljósmyndum frá söguslóðunum. Jóhannes Eiríksson endursegir hér Njálu og tengir við söguslóðirnar með glæsilegum ljósmyndum. Efnið er kryddað með ljóðum eftir ýmsa þekkta höfunda. Jón Böðvarsson skrifaði eftirmála í bókina.

Meira
1.500 kr.

Postcards from the other side of Iceland - Where the Grass is Greener

Höfundur: Bruce McMillan

Fönguleg póstkortabók, full af gæsilegum ljósmyndum af náttúru Íslands og kennileitum, með hnyttnum athugasemdum frá höfundi The Problem With Chickens, Bruce McMillan. Spennandi og skemmtileg bók sem skartar ekta íslenskri náttúrufegurð.

Meira
1.290 kr.

Puffins from the other side of Iceland

Höfundur: Bruce McMillan

Falleg og skemmtileg póstkortabók frá Bruce McMillan, uppfull af ljósmyndum af lundanum víðsvegar um landið. 30 stórglæsilegar ljósmyndir prýða bókina með skemmtilegum staðreyndum um lundann og umhverfi hans á baki hvers korts. Spennandi og skemmtileg bók sem skartar ekta íslenskri náttúrufegurð.

Meira
1.290 kr.

Reykjavík barnanna / Childrens Reykjavík

Þórey Vilhjálmsdóttir og Lóa Auðunsdóttir

Reykjavík barnanna er hvetjandi og aðgengileg handbók sem inniheldur ótal hugmyndir og tillögur að því hvernig hægt er að njóta lífsins með fjölskyldunni í borginni. / Childrens Reykjavik is for parents, tourists, new inhabitants, and everybody who is interested in planning a fun day in Reykjavík.   Meira
990 kr.
 

Rósaleppaprjón í nýju ljósi

Helene Magnusson

Ljósmyndir Hélène og Skúli Magnússon (og fleiri)

Íleppar eða rósaleppar eru prjónuð innlegg sem notuð voru í sauðskinnsskó eða roðskó til þæginda og skrauts. Þessi bók heldur til haga þeirri gömlu prjónahefð og gefur hugmyndir um hvernig má hagnýta hana við nútímahönnun.

Meira
1.990 kr.

Slæðusviptingar

Höfundur: Halla Gunnarsdóttir

Bókin Slæðusviptingar byggist á viðtölum Höllu Gunnarsdóttur við þrettán íranskar konur en þar er dregin upp áhugaverð mynd af lífi þeirra og störfum. Um leið fræðist lesandinn um sögu og menningu fólksins sem byggir þetta umtalaða land og inn á milli má lesa ferðasögur höfundar og nokkurra annarra Íslendinga sem þangað hafa lagt leið sína.

Meira
1.990 kr.

Stærð veraldar - lesið í táknmál íslenskra launsagna

Höfundur: Pétur Halldórsson

Bókin byggir á kenningum Einars Pálssonar um hvernig tölfræði og tákn voru notuð til að reikna út staðsetningu heimsmyndar menningarsamfélaga. Miðað var við gang himintungla, höfuðáttir og hlutföll mannslíkamans.

Meira
1.990 kr.

The measure of the Cosmos - deciphering the imagery of Icelandic myth

Author: Pétur Halldórsson

Measure of the cosmos explains how men in antiquity marked an image of creation in the terrain of new settlements. The book is based on Einar Pálssons hypotheses concerning the use by ancient cultural communities of numerology and symbolism to calculate the placement of their sacred images of creation. The ancient approach is akin to a yardstick, which applies not only to the ancient sun watch discovered by Einar Pálsson in Iceland, for Pétur Halldórssons research has established that the like refrence frame was used to antiquity in all parts of the globe.

Meira
1.990 kr.

The secret of good vinaigrette

Helene Magnusson

Hér er á ferðinni ensk útgáfa bókarinnar Leyndarmál franskrar salatsósu. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breytingum og nú þykir salat nauðsynlegt með hverri máltíð. Flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er einmitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar. Meira
1.290 kr.
 

Velkominn Þorri

Steinunn Þorvaldsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir

Þorrinn er tími til að gleðjast – þegar veturinn er harðastur er áskorunin ótvíræð. Okkur hleypur kapp í kinn og þá er gaman. Bókin Velkominn Þorri! eftir Ragnhildi Gísladóttur og Steinunni Þorvaldsdótturhvetur okkur til að taka vel á móti þessum árlega gesti. Meira
1.990 kr.

Við öll - velferðasamfélag á tímamótum

Höfundur: Steingrímur Sigfússon

Titill bókarinnar vísar til þess að aðalinntak stjórnmálanna eigi að vera hagsmunir heildarinnar, að bæta lífsskilyrði allra. Í seinni tíð hefur það sjaldan gerst að forystumaður í íslenskum stjórnmálum greini skýrt og skilmerkilega frá í bók þeirri grundvallarhugmyndafræði sem hann aðhyllist. Hér eru spilin lögð á borðið og boðið upp á rökræður um stjórnmál þar sem hlutirnir eru settir í samhengi allt frá staðbundnum rammíslenskum veruleika til hraðfara breytinga á öld hnattvæðingar.

Meira
750 kr.

Ætigarðurinn

Hildur Hákonardóttir

Höfundur: Hildur Hákonardóttir

Ætigarðurinn – handbók grasnytjungsins hittir í mark því um þessar mundir er gríðarlegur áhugi fyrir ræktun og hollum lífsháttum. Bókin er ómissandi fyrir alla þá sem vilja rækta garðinn sinn og hlúa um leið að líkama og sál. Hildur býr að Straumum í Ölfusi og sinnir gróðri allan ársins hring. Hér sýnir hún fram á hve ánægjulegt er að lifa í í takt við náttúruna og njóta þess sem hún hefur uppá að bjóða.

Meira
1.890 kr.




Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica