Beint í leiðarkerfi vefsins.
Höfundur: Delphine Minoui
Þýðandi: Laufey S. Sigurðardóttir
Litla jemenska stúlkan Nojoud sýndi ótrúlegan kjark þegar hún óskaði eftir skilnaði og reis þar með upp gegn fornum hefðum í landi sínu.
Harðspjalda
Og það sem meira er, hún fékk skilnað, sú fyrsta á þessum sloðum þar sem meira en helmingur stúlkna giftist löngu áður en þær ná átján ára aldri.
Hugrekki Nojoud var fagnað í alþjóðlegum fjölmiðlum og reynsla hennar snart fólk um allan heim. Hún breyttist úr þögulu fórnarlambi í hetju sem stóð fyrir máli sínu og hefur orðið fyrirmynd barnungra stúlkna sem lenda í slíkum aðstæðum.
Þessi einstaka og heillandi frásögn er skrifuð í samvinnu við Delphine Minoui. Hún er mikilsvirt fréttakona, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda og hefur á síðustu tólf árum fjallað um atburði frá þessum heimshluta í frönskum fjölmiðlum.
Laufey S. Sigurðardóttir þýddi.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011