forlag með sál

Ótuktin

Höfundur: Anna Pálína Árnadóttir

Ótuktin þaut beint á metsölulista þegar hún kom út vorið 2004 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Anna Pálína greindist með krabbamein 39 ára gömul. Samfara hefðbundinni krabbameinsmeðferð notfærði hún sér hugleiðslu og óhefðbundnar lækningar.

Harðspjalda

Í sinni dýpstu örvæntingu upplifði hún líka ómetanlegar hamingjustundir og byggði upp andleg verðmæti sem standa eftir í þessari uppörvandi bók. Anna Pálína var dáð söngkona og vinsæll þáttagerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu.

Hún flutti eftirminnileg erindi víða hér á landi og erlendis um sambúð sína með „Kröbbu frænku“. Í þessari bók birtist einstakur hæfileiki til að miðla öðrum af þeirri reynslu og hugarró sem hún bjó yfir.

 

Bókin er einnig fáanleg sem hljóðbók.

Verð 2.490 kr. Netverð1.290 kr.





Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica