Beint í leiðarkerfi vefsins.
Freyja Haraldsdóttir hefur stökk bein sem brotna við minnsta hnjask. Þrátt fyrir ótal hindranir tekur hún fullan þátt í lífinu. Hér deilir hún með lesanda einstakri reynslu og jákvæðri sýn á lífið. Hún sýnir okkur tilveruna í nýju og bjartara ljósi. Þetta er bók sem breytir lesendum sínum.
Harðspjalda
Við fæðingu kom í ljós að Freyja er með genagalla sem veldur því að bein hennar eru svo viðkvæm að þau hrökkva jafnvel sundur við hvell hljóð, þau eru brothætt eins og postulín. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður óx Freyja úr grasi með það að leiðarljósi að lifa á sömu forsendum og aðrir. Með einbeittum vilja og dugnaði tekst henni að yfirstíga hverja hindrunina á fætur annarri. Hún telur að alvarleiki fötlunar liggi í viðhorfi hvers og eins og að þær takmarkanir sem koma í kjölfarið birtist í stöðlum samfélagsins.
Alma Guðmundsdóttir var stuðningsfulltrúi Freyju um tíma og hreifst þá af viðhorfum hennar og óbilandi kjarki. Þær urðu nánar vinkonur og skrá hér saman einstaka sögu konu sem berst fyrir því að samfélag okkar veiti öllum jöfn tækifæri. Sagan er dramatísk, fyndin og viðburðarík.
Nýtt líf tilnefndi Freyju Haraldsdóttur konu ársins 2007. Í umfjöllun blaðsins um Freyju segir að hún sé ein af hetjum samtímans. Baráttukona með ríka réttlætiskennd sem hefur helgað líf sitt því að breyta viðhorfum til fólks með fötun og stuðla að því að samfélagið geri ráð fyrir öllum. Fyrst og fremst er hún þakklát fyrir lífið og ákveðin í að njóta þess til hins ýtrasta.
Postulín er einnig fáanleg sem hljóðbók.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011