forlag með sál

Ævisögur

Baráttan fyrir börnin - Reynslusaga móður af einhverfu

Karen Kristín Ralston

Karen Kristín er Bandaríkjamaður, búsett á Íslandi og tvö fjögurra barna hennar hafa verið greind með einhverfu. Baráttan fyrir börnin er persónuleg saga hennar og fjölskyldu hennar í baráttu þeirra við þennan erfiða og einstaklingsbundna sjúkdóm. Meira
1.490 kr.

Borða, biðja, elska

Elizabeth Gilbert

Íslensk þýðing: Herdís Magnea Hübner

Bókin hefur setið í efstu sætum á metsölulista bæði vestan hafs og austan og hlotið einróma lof. Hún er í senn ferðasaga, uppbyggileg sjálfsskoðun og ástarsaga sem sögð er af mikilli glettni, djúpu innsæi og spriklandi frásagnargleði.

Meira
2.490 kr.

Borða, biðja, elska - Kilja

Elizabeth Gilbert

Íslensk þýðing: Herdís Magnea Hübner

Bókin hefur setið í efstu sætum á metsölulista bæði vestan hafs og austan og hlotið einróma lof. Hún er í senn ferðasaga, uppbyggileg sjálfsskoðun og ástarsaga sem sögð er af mikilli glettni, djúpu innsæi og spriklandi frásagnargleði.

Meira
1.990 kr.

Brautryðjandinn - Júlíana Jónsdóttir skáldkona

Höfundur: Guðrún P. Helgadóttir

Í þessari bók rekur höfundur æviferil Júlíönu Jónsdóttur en hún var fyrst íslenskra kvenna sem fékk ljóðabók sína gefna út. Sagt er frá uppvaxtarárum hennar á Rauðsgili í Borgarfirði, dvöl hennar í Akureyjum á Breiðafirði, Stykkishólmi og Reykjavík og loks veru hennar vestan hafs, þar sem hún bjó til æviloka.

Meira
690 kr.

Dagbók Hélène Berr 1942-1944

Hélène Berr

Íslensk þýðing: Ólöf Pétursdóttir

Hélène Berr var ung stúlka af gyðingaættum sem bjó við gott atlæti hjá velstæðum foreldrum sínum í París og stundaði nám við Sorbonne-háskóla þegar síðari heimstyrjöldin skall á. Það þrengdi sífellt meira að fjölskyldunni eins og öðrum gyðingum sem var smám saman útskúfað úr samfélaginu.

Meira
1.990 kr.
 

Elfa Gísla og hinar sögurnar

Elfa Gísladóttir og Anna Ólafsdóttir Björnsson

Elfa Gísladóttir hefur ávalt þurft að standa á eigin fótum og sjaldan silgt lignan sjó. Tími uppgjörs og sátta er runnin upp og nú kemur fyrir almenningssjónir ævintýraleg og dramatísk saga Elfu.

Meira
2.490 kr.

Ég er Nojoud, 10 ára - fráskilin

Höfundur: Delphine Minoui

Þýðandi: Laufey S. Sigurðardóttir

Litla jemenska stúlkan Nojoud sýndi ótrúlegan kjark þegar hún óskaði eftir skilnaði og reis þar með upp gegn fornum hefðum í landi sínu.

Meira
2.990 kr.

Ég skal vera dugleg

Lovísa María Sigurgeirsdóttir

Til allrar hamingju er það ekki hlutskipti margra lítilla barna að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi, fjarri fjölskyldu og vinum. Það fékk þó Lovísa María Sigurgeirsdóttir frá Hrísey að reyna og í bókinni Ég skal vera dugleg rifjar hún upp dvöl sína á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar hún var lítil stelpa upp úr 1960.

Meira
1.990 kr.

Jesús og Búdda - sami boðskapurinn

Jesús og Búdda. Hverjir voru þessir menn? Hvaðan komu þeir og hvað gerðu þeir? Í þessari bók mun ýmislegt koma lesandanum á óvart. Þrátt fyrir að þá skilji að fimm hundruð ár í tíma og þrjú þúsund mílur í rúmi eru ótrúlega margar hliðstæður í lífi þeirra og starfi. Meira
1.990 kr.

Maður gengur með; dagbók verðandi föður

Höfundur: Darri Johansen

Myndskreyting: Jón Ágúst Pálmason

Ég heiti Darri Þegar kærastan mín varð ólétt settist ég niður og byrjaði að skrifa dagbók. Veit eiginlega ekki af hverju. Ég byrjaði bara ...  

Bókin er stundum fyndin, stundum alvarleg. Svolítið eins og lífið sjálft. Þetta er ekki kennslubók. Bara mín saga. Mínir 9 mánuðir.

Meira
990 kr.
 

Mynd af konu - Vilborg Dagbjartsdóttir

Skrásetjari: Kristín Marja Baldursdóttir

Vilborg Dagbjartsdóttir er meðal virtustu skálda þjóðarinnar og sérlega farsæll og vinsæll kennari. Hún hefur ákveðnar skoðanir og einstaka frásagnargáfu eins og fram kemur í þessari leiftrandi skemmtilegu bók þar sem hún leysir frá skjóðunni og deilir ýmsum áhugaverðum minningabrotum með lesandanum.

Meira
920 kr.

Ótuktin

Höfundur: Anna Pálína Árnadóttir

Ótuktin þaut beint á metsölulista þegar hún kom út vorið 2004 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Anna Pálína greindist með krabbamein 39 ára gömul. Samfara hefðbundinni krabbameinsmeðferð notfærði hún sér hugleiðslu og óhefðbundnar lækningar.

Meira
1.290 kr.

Ótuktin hljóðbók

Höfundur: Anna Pálína Árnadóttir

Ótuktin þaut beint á metsölulista þegar hún kom út vorið 2004 og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Anna Pálína greindist með krabbamein 39 ára gömul. Samfara hefðbundinni krabbameinsmeðferð notfærði hún sér hugleiðslu og óhefðbundnar lækningar.

Meira
1.290 kr.

Postulín

Freyja Haraldsdóttir & Alma Guðmundsdóttir

Freyja Haraldsdóttir hefur stökk bein sem brotna við minnsta hnjask. Þrátt fyrir ótal hindranir tekur hún fullan þátt í lífinu. Hér deilir hún með lesanda einstakri reynslu og jákvæðri sýn á lífið. Hún sýnir okkur tilveruna í nýju og bjartara ljósi. Þetta er bók sem breytir lesendum sínum.

Meira
1.490 kr.

Reynsluslóðir lögreglumanns og íþróttakappa

Höfundur: Hallgrímur Jónsson

Hallgrímur fæddist á Bessastöðum en ólst upp á Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu og kennir sig við þann stað. Hér segir hann frá uppvexti sínum í íslenskri sveit á fyrri hluta tuttugstu aldar; frá eftirminnilegu fólki og atburðum. Meira
2.490 kr.
 

Síðasti fyrirlesturinn

Höfundur: Randy Pausch með aðstoð Jeffrey Zaslow

Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir

Þegar Randy Pausch, 46 ára prófessor í tölvunarfræðum við Carnegie Mellon háskóla, var beðinn að tala um faglega vegferð sína hafði hann nýlega fengið að vita að hann ætti aðeins fáa mánuði eftir ólifaða. Útkoman var Síðasti fyrirlesturinn, sem fjallar um mikilvægi þess að stefna að ákveðnu marki.

Meira
1.990 kr.

Skáldkonur fyrri alda

Höfundur: Guðrún P. Helgadóttir

Í þessu verki sínu skýrir höfundur frá hlutdeild íslenskra kvenna í sköpunarsögu íslenskra bókmennta fyrstu aldirnar og segir frá þekktum skáldkonum fyrri alda, þeim Þórunni á Grund, Steinunni á Keldum, Þórhildi skáldkonu, Jóreiði í Miðjumdal, Steinunni í Höfn, Látra-Björgu, Maddömunni á Prestbakka, Ljósavatnssystrum og Vatnsenda-Rósu.

Meira
980 kr.

Skáld - Rósa, ljósmóðirinn Rósa Guðmundsdóttir

Höfundur: Sr. Gísli H. Kolbeins

Skáld-Rósa eða Vatnsenda-Rósa varð þjóðþekkt í lifanda lífi og er löngu orðin goðsögn. Sr. Gísli H. Kolbeins minnist hér Rósu Guðmundsdóttur. Hann rekur einstæða sögu hennar svo eftirminnilega að líklega mun þjóðin muna Skáld-Rósu um ókomin ár.

Meira
1.690 kr.

Þeir tóku allt, meira að segja nafnið mitt

Höfundur: Thea Halo

Íslensk þýðing: Bryndís Víglundsdóttir

Pontus-Grikkir voru reknir frá heimkynum sínum í dauðagöngu um fjallhéruð Norður-Tyrklands og eyðimörk Sýrlands vorið 1920. Þar á meðal var stúlkan Themía sem missti systkini sín, foreldra, vini og nágranna, en lifði af fyrir ótrúlega seiglu og lífsvilja. Þetta er heillandi saga um mannlega reisn, saga konu sem bjó yfir styrk, visku og kærleika til að gera hið besta úr þeim aðstæðum sem lífið færði henni og láta ekki bitrar minningar halda sér í heljargreipum.

Meira
1.490 kr.




Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica