Fyrir algjöra slysni kemst Klara að skelfilegu leyndarmáli sem kollvarpar tilveru hennar og fjölskyldunnar. Hún verður að grípa til sinna ráða og í slagtogi við Rebekku, fyrrum Andrésar andar meistara í svigi, og Rut, sem er óformlegur Íslandsmeistari í að setja á sig brúnkukrem, hefst hún handa við að bjarga því sem bjargað verður áður en leyndarmálið kemst upp og veröld hennar springur.
Í ofanálag er draumaprinsinn fluttur til landsins og er langtum fullkomnari en hana hafði órað fyrir. Nú eru góð ráð dýr og kominn tími til að brýna klærnar!
Þetta er önnur bók Mörtu Maríu og Þóru en þær skrifuðu bókina Djöflatertan sem kom út fyrir tveimur árum. Sú bók vakti gríðarlega gleði -- ekki síst meðal ungra kvenna og hafa verið skrifaðar fleiri hundruð ef ekki þúsund ritgerðir um bókina í hinum ýmsu menntaskólum landsins.