forlag með sál
Mary Poppins

Mary Poppins

Höfundur: P.L. Travers

Myndskreyting: Mary Shepard

Íslensk þýðing: Hallur Hermannsson

Hefur þú orðið þess heiðurs aðnjótandi að kynnast Mary Poppins? Þeir sem það hafa gert vita að hún er engin meðalkona og þeir vita líka að hún hefur lag á því að gera heiminn okkar skemmtilegri - og örlítið skringilegri en ella.

Harðband

Mary Poppins er sígild og sívinsæl, en nokkuð langt er síðan bók um hana kom út á íslensku. Íbúarnir í Kirsuberjagötu eru til fyrirmyndar í einu og öllu. Eitt síðkvöldið þegar austanvindurinn blæs birtist skyndilega vel klædd og ofurlítið kuldaleg kona með regnhlíf á tröppunum hjá Banksfjölskyldunni og gerist barnfóstra þar á bæ.

Systkinin Jane og Michael finna fljótt út að Mary Poppins er ólík öllum öðrum barnfóstrum og áður en varir lenda þau með henni í ótrúlegum ævintýrum, svo ekki sé meira sagt ...

Mary Poppins minnir okkur á, að það sem mestu máli skiptir er að vera maður sjálfur og njóta þess að vera ekki eins og allir aðrir. Sjálf er hún ekki dæmigerð að neinu leyti, hvorki sem barnfóstra, kennari, vinkona né kvenmaður. Saga sem börn á öllum aldri

Vara ekki fáanleg

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica