Beint í leiðarkerfi vefsins.
Samantekt: Björk Bjarnadóttir
Myndskreyting: Guðrún Tryggvadóttir
Sagnir af landvættum og kynjadýrum hafa verið á vörum þjóðarinnar frá aldaöðli. Hér er að finna þjóðsögur sem veita innsýn í hinn fjölbreytilega og ævintýralega sagnaheim fyrr á tímum.
Harðspjalda
Hér er að finna þjóðsögur sem veita innsýn í hinn fjölbreytilega og ævintýralega sagnaheim fyrr á tímum þegar hafmeyjar seiddu menn í djúpið, skrímsli byltu sér í sjó og vötnum og landvættir vöktu yfir hverjum landsfjórðungi. Á síðum bókarinnar spretta meðal annars fram marbendill, fjörulabbi, bjarndýrakóngur, nykur, Urðarboli og Katanesdýrið, að ógleymdum Lagarfljótsorminum ógurlega.
Landvættir Íslands
Í Heimskringlu er sagt frá því að Haraldur Gormsson Danakonungur vildi sigla til Íslands til að hefna fyrir níð sem ort hafði verið um hann. En fyrst bað Haraldur galdramann nokkurn um að fara á undan til að kanna aðstæður. Sá göldrótti fór hamförum og breytti sér í hval og synti til Íslands. Þegar hann kom að landinu varð hann þess fljótt var að fjöll og hólar voru full af landvættum, bæði stórum og smáum. Er hann kom inn á Vopnfjörð og ætlaði á land kom dreki einn mikill æðandi og fylgdu honum ormar, pöddur og eðlur sem spúðu eitri.
Hann flúði þá vestur fyrir land og kom inn Eyjafjörð. Mætti hann þar svo stórum fugli að vængirnir náðu milli fjalla beggja vegna fjarðarins, einnig var þarna fjöldi smærri fugla. Fór nú sendiboðinn vestur um land og stefndi inn Breiðafjörð. Þar kom á móti honum stórt naut sem óð út í sjóinn og öskraði ógurlega, nautinu fylgdu margar landvættir.
Að endingu hélt maðurinn suður fyrir Reykjanes og hugðist ganga á land á Suðurlandi. Þar mætti honum bergrisi með járnstaf í hendi og var hann hærri en fjöllin. Með risanum voru fleiri jötnar. Sendiboðinn fór loks austur með landinu en þar var ekkert nema sandar og öræfi og ógurlegt brim var við ströndina. Sneri maðurinn aftur til Noregs og bar landinu illa söguna.
Þetta eru landvættirnar fjórar, dreki, örn, naut og risi, sem eru á skjaldarmerki Íslendinga.
Bókin er einnig fáanleg á þýsku.
Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011