Valmynd.
Lúlú finnst gaman að lita. Dagurinn hjá Lúlú er fullur af litlum ævintýrum sem auðga ímyndunarafl ungra barna. Florence Helga er alin upp í Frakklandi en heldur tryggð við Ísland, land móður sinnar, með því að senda ungum Íslendingum fallegar og litríkar Lúlúsögur.
Harðband
Höfundurinn, Florence Helga, skrifar og myndskreytir.
Einnig eru til bækurnar Dagur í lífi Lúlú, Lúlú kann að telja og Lúlú heldur jól.
Þessi bók segir frá öllum litum regnbogans, en Lúlú elskar þá alla. Bókin hentar vel fyrir allra yngstu börnin sem eru að læra litina og heiti þeirra.