Valmynd.
Myndskreytingar: Bjarni Þór Bjarnason
Bína er að byrja í skólahóp í leikskólanum. Hún lærir að ríma, leika sér með orð og uppgötvar hljóð bókstafanna. Hún lærir einnig að einbeita sér. þessi bók er nauðsynleg fyrir öll börn sem eru að undirbúa sig fyrir listina að læra að lesa.
Harðband
Bína er glöð í leikskólanum og nú er hún búin að læra nógu mikið til þess að byrja í skólahóp með elstu börnunum. En Bína er hrædd vegna þess að hún veit ekki hvernig henni mun ganga í skólahópnum. Sem betur fer á hún góðan vin sem hjálpar henni og Bína lærir ýmislegt nýtt og gagnlegt.
Ásthildur Bj. Snorradóttir er talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Reykjavíkur. Hún hefur langa reynslu af því að styrkja boðskiptafærni og efla málþroska ungra barna. Ásthildur gerði rannsókn á hljóðkerfisvitund sem er mikilvægur undirstöðuþáttur fyrir lestur. Bína lærir orð, hljóð og stafi byggir á niðurstöðum úr þeirri rannsókn. Rannsóknir um allan heim sýna bein tengsl á milli hljóðkerfisvitundar og lestrarfærni.