forlag með sál

Skáldverk

Draumaveröld kaupalkans

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Viltu koma með í brjálað búðaráp með Rebeccu Bloomwood? Viltu kynnast ástum hennar og örlögum? Rebecca er kaupóður lygalaupur sem heillar lesendur með meinfyndnum uppátækjum og dagdraumum sem ná ekki nokkurri átt ... eða hvað?Hér kemur fyrsta af nokkrum metsölubókum um gelluna sem leynist í hjarta okkar allra ...

Meira
1.450 kr.

Kaupalkinn í New York

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Sjálfstætt framhald af hinni geysivinsælu bók um Draumaveröld kaupalkans, um hina jákvæðu og hrifnæmu Becky, sem segir kannski ekki alltaf alveg satt, en er samt alltaf jafn einlæg og heillandi.

Meira
1.450 kr.

Manstu mig?

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Aldís Björnsdóttir

Bók eftir Sophie Kinsella, höfund metsölubókanna um kaupalkann síglaða. Sagan um Lexí og hennar litríku fjölskyldu, vini - og ástmenn er ógleymanlega fyndin ástar- og harmsaga sem engin alvöru skvísa má missa af.

Meira
1.450 kr.
 

Hlustarinn

Ingibjörg Hjartardóttir

Árið 1949 var fjölmargt verkafólk flutt frá Þýskalandi til að vinna á sveitabæjum á Íslandi. Nær sextíu árum seinna verður saga þessara kvenna viðfangsefni Helgu í BA-ritgerð í sagnfræði. Á sumardaginn fyrsta fer hún norður í land til að spjalla við Súlu, sem er ein fárra eftirlifandi Þjóðverja úr þessum hópi. Helga er ekki fyrr komin til hennar en skellur á aftakaveður og hún verður veðurteppt. Fljótlega vaknar sá grunur að erindi Helgu sé annað og meira en að safna heimildum. Er ritgerðin ef til vill yfirskin fyrir heimsókn hennar til Súlu? Hvaða leyndarmál búa undir yfirborðinu? Meira
1.990 kr.

Það sem mér ber

Ótrúlega spennandi, óhugnanleg og einstaklega grípandi saga.” (Anne Shäffer, Bergens Tidende) „Glæpsamlega vel skrifað.” (Christopher Hals Gylseth, Dagbladet) „Það sem mér ber er án vafa besta glæpasaga Anne Holt.” (Tone Solberg, Dagens Næringsliv) Meira
1.990 kr.

Sálmurinn um glimmer

Auður A. Ólafsdóttir

Auður hefur sent frá sér sína fyrstu ljóðabók sem nefnist Sálmurinn um glimmer.

Um er að ræða 57 blaðsíðna söguljóð þar sem tekist er á við ástríður, þjáningu, dauða, endurfæðingu, tungumálið eða skáldskapinn og fegurðina sem „bjargar heiminum á endanum“.

Auður Ava vinnur að leikriti og nýrri skáldsögu. Meira
1.490 kr.
 

English

Enjoy - Verði þér að góðu

Veitingahúsavísir um Reykjavík


Reykjavik´s culinary scene has grown rapidly and the many Reykjavik restaurants offer a wide variety of menus and are a true potpourri of styles. With attention to ambience, food and location, this selection of establishments in the Icelandic capital covers the whole price range. They are presented from the authors´ view through first-class photos and a descriptive and informative text. The two authors have relished and studied the culinary scene in Iceland for a number of years. Meira
3.490 kr.

Iceland - so quiet - English

Kristján Ingi Einarsson

Surrounded by the sound and fury of life in the 21st century, it would be easy to forget those places where solitude reigns, where serenity seeps into the soul and only silence speaks. Meira
2.390 kr.

Postcards from the other side of Iceland - Where the Grass is Greener

Höfundur: Bruce McMillan

Fönguleg póstkortabók, full af gæsilegum ljósmyndum af náttúru Íslands og kennileitum, með hnyttnum athugasemdum frá höfundi The Problem With Chickens, Bruce McMillan. Spennandi og skemmtileg bók sem skartar ekta íslenskri náttúrufegurð.

Meira
1.290 kr.
 

Puffins from the other side of Iceland

Höfundur: Bruce McMillan

Falleg og skemmtileg póstkortabók frá Bruce McMillan, uppfull af ljósmyndum af lundanum víðsvegar um landið. 30 stórglæsilegar ljósmyndir prýða bókina með skemmtilegum staðreyndum um lundann og umhverfi hans á baki hvers korts. Spennandi og skemmtileg bók sem skartar ekta íslenskri náttúrufegurð.

Meira
1.290 kr.

Eldur uppi / Iceland on Fire

Einstök ljósmyndabók sem fjallar í myndum um eldgosið í Eyjafjallajökli í gegnum linsu ljósmyndarans Vilhelms Gunnarssonar. Sjónarspilið var mikilfenglegt eins og íbúar heims fengu að kynnast og kenna á. Meira
2.990 kr.

Rikka and her magic ring

Hendrikka Waage

This book takes the reader through all that makes Iceland such a wonderful and exhilarating place for children to visit and if it creates a desire for them to visit this country in later life, it will have fulfilled its purpose and made them more aware of the different cultures and customs that makes this world such an exciting place.  Meira
2.390 kr.
 

Hljóð og mynd

Postulín - hljóðbók

Freyja Haraldsdóttir & Alma Guðmundsdóttir

Hljóðbók, 7 geisladiskar, 8 klukkustundir. Nýtt líf tilnefndi Freyju Haraldsdóttur konu ársins 2007. Í umfjöllun blaðsins um Freyju segir að hún sé ein af hetjum samtímans. Baráttukona með ríka réttlætiskennd sem hefur helgað líf sitt því að breyta viðhorfum til fólks með fötun og stuðla að því að samfélagið geri ráð fyrir öllum. Fyrst og fremst er hún þakklát fyrir lífið og ákveðin í að njóta þess til hins ýtrasta.

Meira
1.490 kr.

Sögur af Munda

Bryndís Víglundsdóttir

Mundi átti heima fyrir vestan þegar hann var lítill strákur. Ýmislegt dreif á daga hans þegar hann var að alast upp sem er áreiðanlega frábrugðið daglegu lífi nútímabarna. Meira
1.990 kr.

Emil í Kattholti

Astrid Lindgren

Þýðing: Vilborg Dagbjartsdóttir

Lesari: Bessi Bjarnason

Tveir geisladiskar með bráðskemmtilegu efni um prakkarann Emil í Kattholti. Vönduð þýðing. Skemmtilegur flutningur.

Meira
1.500 kr.
 

Ævintýri H.C. Andersen 1

Höfundur: H.C. Andersen

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Tveir geisladiskar með völdum þekktum ævintýrum eftir ævintýraskáldið mikla H.C. Andersen i vönduðum flutiningi Heiðdísar Norðfjörð. Steingrímur Thorsteinsson íslenskaði.

Meira
1.690 kr.

Fyrst ég gat hætt getur þú það líka - hljóðbók

Valgeir Skagfjörð

Bókin vinsæla Fyrst ég gat hætt er nú fáanleg á hljóðbók sem höfundurinn Valgeir Skagfjörð leikari les. Valgeir hefur hjálpað mörgum að taka þá stóru ákvörðun að drepa í fyrir fullt og allt. Hér deilir hann reynslu sinni af því að hætta reykingum fyrir fullt og allt.

Meira
1.490 kr.

The Secret DVD

Rhonda Byrne

DVD: Heimildamyndin um Leyndarmálið

Vegleg heimildamynd um The Secret er fáanleg á ensku hjá Sölku. Áhorfandinn er leiddur áfram í gegnum viðtöl við höfunda, reynslusögur fólks sem hefur notað Leyndarmálið til að sigrast á erfiðleikum eða ná árangri og ýmsa spekinga sem hafa rannsakað fyrirbrigðið.

Meira
1.990 kr.
 

Handbækur

Horfin inn í heim átröskunar

Höfundar: Ásrún Eva Harðardóttir og Þórdís Rúnarsdóttir

Hér er athyglisverð umfjöllun og greining á einum banvænasta geðsjúkdómi nútímans. Höfundarnir berjast fordómum og gefa mynd af vandanum eins og hann er í raun og veru. Mest er þó um verð sú von sem þær glæða með lesandanum.

Meira
990 kr.

Baráttan fyrir börnin - Reynslusaga móður af einhverfu

Karen Kristín Ralston

Karen Kristín er Bandaríkjamaður, búsett á Íslandi og tvö fjögurra barna hennar hafa verið greind með einhverfu. Baráttan fyrir börnin er persónuleg saga hennar og fjölskyldu hennar í baráttu þeirra við þennan erfiða og einstaklingsbundna sjúkdóm. Meira
1.490 kr.

Óskabörn - Ættleiðingar á Íslandi

Sigrún María Kristinsdóttir

Ættleiðing er viðkvæmt og afdrifaríkt ferli fyrir lítið barn sem eflaust mun allt sitt líf velta reglulega fyrir sér uppruna sínum og örlögum. Viðmælendur Sigrúnar Maríu Kritinsdóttur eru fagfólk, ættleiddir einstaklingar og fjölskyldur þeirra.

Meira
1.990 kr.
 

Töfrar 1-2-3

Höfundur: Thomas W. Phelan

Íslensk þýðing: Bryndís Víglundsdóttir

Hver ræður á heimilinu? Ráðum við ferðinni eða látum við börnin stjórna okkur? Ekki er alltaf auðvelt að taka á hegðunarvanda barna, halda stillingu og sýna sanngirni. Góð ráð eru því vel þegin, ekki síst ef þau krefjast þess ekki að við séum snillingar eða sálfræðingar.

Meira
1.790 kr.

Töfrar 1-2-3

Höfundur: Thomas W. Phelan

Íslensk þýðing: Bryndís Víglundsdóttir

Hver ræður á heimilinu? Ráðum við ferðinni eða látum við börnin stjórna okkur? Ekki er alltaf auðvelt að taka á hegðunarvanda barna, halda stillingu og sýna sanngirni. Góð ráð eru því vel þegin, ekki síst ef þau krefjast þess ekki að við séum snillingar eða sálfræðingar.

Meira
1.790 kr.

Borða, biðja, elska

Ný útgáfa 2010


Borða, biðja, elska - endurprentun 2010 með bíómyndakápu
Meira
2.250 kr.
 

Barnabækur

Rikka og töfrahringurinn

Hendrikka Waage

Rikka á töfrahring og með hans hjálp getur hún ferðast í tíma og rúmi um víðáttur Íslands ásamt vinkonu sinni. Bókin bregður upp myndum af áhugaverðum stöðum og skemmtilegum ævintýrum sem börn geta lent í á töfralandinu Íslandi og höfðar til barna á öllum aldri.  Meira
2.390 kr.

Fjallabók barnanna

Sigrún Huld Þorgrímsdóttir

Bókin er ætluð börnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra. Á skemmtilegan hátt eru kynntar gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur sem henta börnum á aldrinum 6-16 ára. Farnar eru óhefðbundnar leiðir upp á Esjuna, farið út á Reykjanes og upp á Hellis- og Mosfellsheiði. Meira
2.490 kr.

Snuðra og Tuðra 5 - missa af matnum

Iðunn Steinsdóttir

Myndskreyting: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Það er mikið að gera hjá Snuðru og Tuðru. Þær þurfa að sinna brúðunum sínum og hafa varla tíma til að borða með fjölskyldunni. Þær koma og stinga upp í sig nokkrum bitum og hlaupa svo frá miðju borðhaldi! Einn góðan veðurdag heldur mamma garðveislu fyrir skyldfólkið og ber fram uppáhaldsmat þeirra systra, kjötbollur og kartöflumús. - Og nú reynir á systurnar að nota mannasiðina.

Meira
750 kr.
 

Leikir á léttum nótum

Höfundur: Bryndís Bragadóttir

Myndir: Brian Pilkington

Í þessari leikjabók er leitast við að setja saman á einn stað sem fjölbreyttast úrval af leikjum, keppnum og þrautum sem nota mætti við hin ýmsu tækifæri. Leikirnir henta vel til skemmtunar og gamans í barnaafmælum og á mannamótum eða heima þar sem fjölskyldan er saman á góðri stund.

Meira
690 kr.

Going Fishing

Bruce McMillan

Going Fishing er ensk útgáfa af bókinni Til fiskiveiða fóru. Þar segir frá dreng sem fer á veiðar með afa sínum og lærir ýmislegt um fisk og fiskveiðar. Íslendingar eru fiskveiðiþjóð. Það eru fiskar á peningunum og fiskar á frímerkjunum. Bruce McMillan hefur samið og myndskreytt margar barnabækur um Ísland.

Meira
990 kr.

Til fiskiveiða fóru

Bruce McMillan

Íslensk þýðing: Sigurður A. Magnússon

Í litlu fiskiþorpi á Íslandi eru tveir bátar að fara í róður. Friðrik Örn fær að fara með öðrum þeirra. Friðrik afi hans veiðir á stöng. Haddi afi notar net til að veiða hrognkelsi, sem er ekki fallegasti fiskur í heimi. Bókin er skreytt fjölda ljósmynda frá Breiðafirði og í lok bókarinnar eru fræðslukaflar um þorskinn og hrognkelsið. Íslandsvinurinn Bruce Mcmillan er einnig höfundur hinna geysivinsælu og verðlaunuðu Hænur eru hermikrákur.

Meira
990 kr.
 

Hörpuútgáfan

Passíusálmar

Einstaklega falleg útgáfa af þessu klassíska meistaraverki Hallgríms Péturssonar. Hönnun bókar og kápu var í höndum Halldórs Þorsteinssonar. Prentsmiðjan Oddi annaðist umbrot. Meira
2.990 kr.

Nýtt líf í hjónabandið

Höfundur: Michele Weiner - Davis

 

Nýtt líf í hjónabandið er bók með ítarlegum leiðbeiningum um hvernig má endurnýja hjónabandið í stað þess að skilja. Þú getur breytt hjónabandi þínu með því að breyta sjálfum þér. Í bókinni er sýnt fram á að hægt er að beita aðferðum sem í fljótu bragði virðast fjarstæðukenndar til að rjúfa neikvæð sambúðarmynstur. Það ber árangur strax

Meira
690 kr.

Von - viðbrögð við missi

Sr. Bragi Skúlason

Þessi bók er byggð á reynslu margra, bæði er um að ræða reynslu höfundar og reynslu syrgjenda víða um land. Höfundur hefur starfað sem formaður fræðslunefndar Nýrrar Dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð í Reykjavík og hefur skipulagt fjölda fyrirlestra, námskeiða og námstefnu fyrir samtökin, auk útgáfu tímarits. Meira
990 kr.
 

Íslensk ástarljóð

Samantekt: Snorri Hjartarson

Öll ljóðin í þessu úrvali eru listaverk, perlur, sem aldrei gleymast. Snorri Hjartarson var einn af öndvegishöfundum íslenskrar ljóðlistar á tuttugustu öld. Hann var auk þess einn af hæfustu listgagnrýnendum landsins. Þetta er gullfalleg bók sem gaman er að gefa þeim sem manni þykir vænt um.

Meira
1.690 kr.

Þjóðsögur Jóns Árnasonar

Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð

Þjóðsögur Jóns Árnasonar eru öllum Íslendingum vel kunnar og sama má segja um þau velvöldu ævintýri sem einnig er að finna á þessum vönduðu geisladiskum.

Meira
1.690 kr.

Orð dagsins úr biblíunni

Í þessari bók eru ritningagreinar fyrir hvern dag ársins. Ólafur Skúlason biskup valdi efnið og ritar inngangsorð. Þar segir hann m.a.: „Þessi bók gefur gott tækifæri til þess að verja stuttri stund í að lesa og skoða vers úr Biblíunni en hún hefur með réttu verið kölluð „bók bókanna“. Henni er ætlað að koma til móts við fólk sem hefur lítinn tíma. Meira
1.490 kr.
 


Þú ert hér Forsíða > Bækur


Póstlisti Sölku


konur

Vilt þú eiga orðið í næstu dagatalsbók?

Við erum að leita að konum sem vilja vera með í dagatalsbók 2011

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica